Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Lovísa Arnardóttir skrifar 10. júní 2026 06:32 Kaffistofa Samhjálpar er nú starfrækt tímabundið í húsnæði Fíladelfíu kirkjunnar í Hátúni. Vísir/Anton Brink Vinna úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er á lokastigi hvað varðar kærur frá íbúum vegna málsmeðferðar Reykjavíkurborgar á flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg 46. Nefndin sér fram á að ljúka sinni vinnu fyrir mánaðamót en Samhjálp stefnir á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði.
Fjallað hefur verið um það síðustu daga að íbúar óttist að kaffistofan verði tekin til starfa áður en úrskurður nefndarinnar liggur fyrir. Samkvæmt svörum frá úrskurðarnefndinni er allri gagnaöflun lokið og úrskurðarvinna á lokastigi. „Vonandi næst að klára það fyrir mánaðamótin. Ég get því miður ekki verið nákvæmari með tímann,“ segir í svari frá starfsmanni nefndarinnar. Fjörutíu og fjórir íbúar og fasteignaeigendur í hverfi 108 lögðu fram stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar um að veita byggingarleyfi fyrir starfsemi kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Þau krefjast þess að framkvæmdir verði stöðvaðar og vilja að samþykki borgarinnar verði fellt úr gildi og málsmeðferð verði háð breytingum á deiliskipulagi en ekki aðalskipulagi. Í kæru íbúanna sagði að um væri að ræða breytingar á verslunarhúsnæði í móttökueldhús og matsal fyrir allt að 300 gesti daglega. Ekkert deiliskipulag væri í gildi á svæðinu og byggði ákvörðun borgarinnar á því að starfsemin samræmdist aðalskipulagi sem „veitingastaður í flokki I“. Kærendur tökdu að sú forsenda væri efnislega röng og að málsmeðferð hafi verið verulega áfátt. Kaffistofa Samhjálpar er opin allan ársins hring frá klukkan 10 til 14 og er í boði að koma þangað og fá morgunmat og hádegismat gjaldfrjálst. Um 300 til 400 máltíðir eru afgreiddar daglega og er hópurinn sem sækir þjónustuna afar fjölbreyttur en þangað leita til dæmis heimilislausir, hælisleitendur og fátækt fólk. Stefna á að opna síðar í þessum mánuði Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kaffistofu Samhjálpar, segir framkvæmdir komnar langt á veg og nú sé verið að vinna að því að ganga frá bruna- og öryggiskerfi í húsnæðinu. „Vonandi getum við opnað síðar í þessum mánuði. Það á eftir að fá öryggis- og lokaúttekt og úttekt heilbrigðiseftirlitsins, svo eitthvað sé nefnt, eins og vaninn er,“ segir hún um stöðu framkvæmda. Greint var frá því um helgina að íbúar vonuðust til þess að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks myndi endurskoða ákvörðunina um að flytja kaffistofuna á Grensásveg. Undirskriftasöfnun stendur yfir vegna mótmæla íbúa en í viðtali við einn þeirra um helgina var einnig vísað til þess að í aðdraganda kosninga hafi fulltrúar þeirra flokka sem nú eru í meirihluta lýst yfir vilja til að aðstoða Samhjálp við að „finna annað húsnæði á betri stað“. Leitin að nýju húsnæði fyrir kaffistofuna stóð í marga mánuði áður en ákveðið var að leigja húsnæðið að Grensásvegi. Guðrún Ágúst hefur sagt í viðtölum áður að staðsetningin hafi ekki verið þeirra fyrsta val en að það eigi að vera um tímabundna ráðstöfun að ræða. Í svari til fréttastofu segist Guðrún Ágústa vonast til þess að nýr meirihluti muni eiga í góðu samstarfi við Samhjálp. „Ég vonast að sjálfsögðu eftir áframhaldandi góðu samstarfi við ríkjandi meirihluta í borginni um okkar mikilvægu starfsemi.“
Kaffistofa Samhjálpar Reykjavík Fjármál heimilisins Fíkn Hælisleitendur Veitingastaðir Innflytjendamál Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Fleiri fréttir Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Sjá meira