Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Kjartan Kjartansson skrifar 10. júní 2026 10:03 Jón Ferdínand Estherarson og Sæþór Benjamín Randalsson sem voru kjörnir formaður og varaformaður Sósíalistaflokksins á aðalfundi um helgina. Sósíalistaflokkur Íslands Jón Ferdínand Estherarson er nýr formaður Sósíalistaflokksins eftir að hann lagði Sæþór Benjamín Randalsson í formannskjöri á aðalfundi flokksins um helgina. Umfangsmiklar breytingar á lögum flokksins voru samþykktar á fundinum sem var ekki auglýstur út á við.
Aðalfundur Sósíalistaflokksins var haldinn í Stórutjarnarskóla í Þingeyjarsveit um helgina. Hann var ekki auglýstur á vefsíðu eða samfélagsmiðlasíðum flokksins. Hópur félagsmann segist ekki hafa fengið boð á fundinn. Þeir sem fengu slíkt boð fengu aðeins að vita að fundurinn yrði á Norðurlandi nálægt Akureyri áður en þeir skráðu sig. Fyrir utan formannskjörið þar sem Jón Ferdínand fékk 63 prósent atkvæða samþykktu þeir sem sátu fundinn umfangsmiklar breytingar á lögum flokksins, ekki síst um kjör á leiðtogum og stjórnarmönnum. Nú er kveðið á um bein formanns og varaformannskjör en þau embætti hafa ekki verið til hjá flokknum til þessa. Sæþór Benjamín var formaður framkvæmdastjórnar flokksins frá því á hitafundi þar sem hópi í kringum Gunnari Smára Egilssyni, eins stofnenda flokksins, var steypt af stóli. Sæþór var sjálfkjörinn varaformaður um helgina. Þá kjósa sósíalistar sér nú 21 meðstjórnanda í miðstjórn í stað þriggja stjórna áður. Á meðal þeirra sem voru kjörnir í miðstjórn til næstu tveggja ára var Kristinn Hannesson sem vakið hefur nokkra athygli fyrir aðdáun sína á stjórnarfari í Norður-Kóreu. Karl Héðinn Kristjánsson, sem var áberandi í hópnum sem steypti Gunnari Smára og félögum hans af stóli í fyrra, var einnig kjörinn í stjórnina til tveggja ára. Silja Sóley Birgisdóttir, nýr borgarfulltrúi flokksins í Reykjavík, var kjörin til eins árs. Á móti kapítalísku og síónísku ESB Sósíalistar ályktuðu gegn Evrópusambandsaðild Íslands og viðræðum um hana. Ástæðan sem nefnd er í ályktuninni er sú að ESB sé ríkjasamband sem byggi í meginatriðum og grunnskipulagi á kapítalískri efnahagsstefnu og utanríkisþjónusta þess þjóni „heimsvaldastefnu, hernaðarhyggju og síónisma“. „Sósíalistaflokkur Íslands hvetur til þess að þjóðin hafni aðildarviðræðum við ESB í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði í ályktun fundarins. Starfaði sem blaðamaður á Heimildinni Jón Ferdínand, nýr formaður Sósíalistaflokksins, hefur meðal annars starfað sem blaðamaður á Heimildinni. Hann er stjórnmálafræðingur að mennt og hefur meðal annars starfað með Leigjendasamtökunum sem hafa verið nátengd Sósíalistaflokknum. Tólf félagar í flokknum segjast hafa kært aðalfundinn til Fyrirtækjaskrár þar sem þeir segjast ekki hafa fengið boð á hann. Sæþór Benjamín vildi ekki tjá sig við Vísi um ásakanir hópsins á mánudag en boðaði yfirlýsingu frá stjórn flokksins á næstu dögum. Ekkert kemur fram í tilkynningunni sem stjórn flokksins sendi frá sér um aðalfundinn í dag um gagnrýni á fundarboðið.
Sósíalistaflokkurinn Þingeyjarsveit Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira