Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. júní 2026 13:22 Það er erfitt að vera einhleypur í dag en stefnumótaforrit geta hjálpað í leit að ástinni. Getty Metnaðarlaus prófíll, þriggja ára gamlar myndir og það að hefja spjallið á „hæ“ eru meðal stærstu mistaka sem fólk gerir á stefnumótaforritinu Smitten að sögn Davíðs Arnar Símonarsonar, framkvæmdastjóra og eins stofnanda Smitten.
Davíð var gestur Margrétar Bjarkar Jónsdóttur og Örnu Þorsteinsdóttur í nýjasta þætti hlaðvarpsins Vörumerki. Þar fór hann yfir rauðu og grænu flöggin á stefnumótaforritinu Smitten en hann hefur ágætis yfirsýn en hvað virkar í íslensku stefnumótalífi. Aðspurður um algengustu mistök notenda stóð ekki á svari. „Þegar fólk leggur ekki metnað í að vera með góðan prófíl, eða nýlegan prófíl , það er bara mjög mikið rautt flagg,“ segir Davíð. Þeir Davíð Örn og Ásgeir Vísir eru stofnendur Smitten.Smitten „Við sjáum þetta aðallega hjá karlkyns notendum. Þeir halda oft að það sé nóg að setja inn tvær eða þrjár myndir af sér og svara tveimur spurningum og að það muni leysa öll þeirra vandamál. Það er eins langt frá sannleikanum og hægt er.“ Hann nefnir önnur algeng mistök þegar fólk er að hefja samtal á forritinu. „Það er svo mikið rautt flagg þegar þú leggur engan metnað í neitt og segir bara: „Hæ“. Við sjáum fullt af einstaklingum byrja á því að segja hæ og þeim er ekki einu sinni svarað, af því að það er svo ógeðslega lélegt.“ Mynd með fiski eða barni virki ekki Davíð svaraði hraðaspurningum í þættinum um það hvers konar myndir séu í lagi á Smitten og hverjar ekki. Niðurstaðan var afgerandi. Sjálfa sleppur, en speglamynd ekki. Mynd með vinahópnum getur gengið, en mynd af viðkomandi haldandi á fiski fær blákalt nei. Sömu örlög hlutu myndir með fyrrverandi klipptan út og myndir sem eru meira en þriggja ára gamlar. Myndir af karlmönnum berum að ofan eru aðeins leyfilegar á ströndinni, en „eitthvað bara í stofunni, nei“. Myndir af börnum á prófílnum eru „helst ekki“ málið að mati Davíðs og tjákn (e. emoji) yfir andlit barnanna gerir illt verra. Ræktarmyndin fékk hins vegar skilyrt samþykki. „Ef þú ert algjör ræktargella og það er svolítið lífið þitt, þá er allt í lagi að taka mynd af þér í ræktinni. Ef þú hefur farið einu sinni í ræktina á síðustu fjórum árum og ert með ræktarmynd sem var tekin fyrir þremur og hálfu ári, það er skrítið,“ segir Davíð. Lykillinn að góðum prófíl er einfaldur að hans sögn: Því fleiri myndir og því meiri upplýsingar, því meiri líkur eru á skemmtilegu spjalli sem gæti leitt eitthvað áfram. „Átti þetta ekki að vera svo skemmtilegt?“ Margrét Björk skráði sig á Smitten í miðju viðtali og fékk aðstoð Davíðs við að velja bestu myndirnar. Yfirferðin var þó ekki sársaukalaus: Myndir úr heitum potti, speglasjálfur og myndir þar sem andlitið sást illa fengu ekki háa einkunn hjá stofnandanum. Hann lagði áherslu á að fyrsta myndin skipti miklu máli og að prófíllinn þyrfti að segja einhverja sögu. „Átti þetta ekki að vera svo skemmtilegt, þetta app? Þetta er orðið bara pínu vandræðalegt,“ sagði Margrét eftir að hafa þolað ítrekaðar ákúrur. Mynd af Margréti með hundinum sínum fékk grænt ljós en mynd með barni fékk hins vegar rautt spjald. Davíð mældi gegn barnamyndum á stefnumótaprófílum, bæði út frá friðhelgi barna og því að slíkar myndir ættu frekar heima síðar í samskiptunum. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér að neðan og nálgast hann á helstu hlaðvarpsveitum.
Ástin og lífið Stefnumótaforrit Tengdar fréttir „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Baldvina Snælaugsdóttir vaknaði eftir heilaskurðaðgerð í október en gat hvorki talað né hreyft sig. Hún man skýrt eftir því þegar læknarnir kölluðu á hana og ljóst var að eitthvað hafði farið alvarlega úrskeiðis. Ísköld kvíðatilfinning hafði hellst yfir hana nokkrum vikum fyrir aðgerðina. Hún sendi neyðarkall til Facebook-vina og bað um baráttustrauma, sem hún trúir að hafi skilað sér á ögurstundu. 18. desember 2025 21:18 Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Óvænt skilaboð á Facebook frá Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, mörkuðu upphaf að samstarfi sem átti eftir að breyta miklu fyrir íslenska fatahönnuðinn Anítu Hirlekar. 2. desember 2025 11:13 Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira
„Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Baldvina Snælaugsdóttir vaknaði eftir heilaskurðaðgerð í október en gat hvorki talað né hreyft sig. Hún man skýrt eftir því þegar læknarnir kölluðu á hana og ljóst var að eitthvað hafði farið alvarlega úrskeiðis. Ísköld kvíðatilfinning hafði hellst yfir hana nokkrum vikum fyrir aðgerðina. Hún sendi neyðarkall til Facebook-vina og bað um baráttustrauma, sem hún trúir að hafi skilað sér á ögurstundu. 18. desember 2025 21:18
Skilaboð frá Höllu á Facebook upphaf að farsælu samstarfi Óvænt skilaboð á Facebook frá Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, mörkuðu upphaf að samstarfi sem átti eftir að breyta miklu fyrir íslenska fatahönnuðinn Anítu Hirlekar. 2. desember 2025 11:13