„Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 13. júní 2026 19:21 Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var óánægður með úrslitin í dag. Vísir/Diego Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, sýtti tækifæri sem fóru forgörðum í fyrri hálfleik þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Þór/KA í áttundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á N1 vellinum á Hlíðarenda í kvöld. „
Ég hefði eiginlega viljað fá meira út úr fyrri hálfleiknum. Mér fannst við vera kröftugar, öflugar og koma okkur í góðar stöður í fyrri hálfleik en ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið. Við erum ekki búin að skora nóg upp á síðkastið. Í síðari hálfleik fannst mér við missa aðeins tökin á leiknum og hann varð jafnari. En ég hefði viljað vinna þennan leik,“ sagði Matthías við Sýn Sport eftir leik. Valur hefur einungis skorað sjö mörk í fyrstu átta leikjum sínum í deildinni. Spurður hvað þyrfti að laga svo mörkin færu að koma í auknum mæli sagði hann: „Bara þetta klassíska, að taka betri ákvarðanir og fylla teiginn betur. Við erum einum til tveimur sekúndum of seinar að koma og fylla boxið. Hlaup og fyrirgjafir fara ekki saman og svona litlir hlutir.“ Valur er með einungis átta stig í áttunda sæti eftir átta leiki. Þrátt fyrir það heldur Matthías í bjartsýnina. „Já, ég er mjög bjartsýnn á framhaldið. Ég hef þvílíka trú á þessu liði. Það er hárrétt að átta stig séu of lítið en á sama tíma get ég alveg sagt að ég er búinn að standa hér í viðtali eftir leiki sem ég hefði alveg viljað fá meira út úr. Valur hefur verið inni í hverjum einasta leik sem það hefur spilað á þessu tímabili hingað til.“
Besta deild kvenna Valur Þór Akureyri KA Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Sjá meira