Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Andri Broddason skrifar 14. júní 2026 09:26 Karl-Anthony Towns fagnaði vel og innilega með félögum sínum í New York Knicks þegar liðið varð NBA-meistari Ronald Cortes/Getty Images New York Knicks er NBA-meistari eftir að hafa unnið Sant Antonio Spurs í fimmta leik viðureignarinnar. Spurs töpuðu aftur stóru forskoti en leikurinn endaði 94-90.
Í fyrsta skipti síðan 1973 er New York Knicks NBA meistari eftir frábæra úrslitaviðureign gegn San Antonio Spurs. Það sem einkenndi Knicks-liðið er þrautseigja þar sem liðið var undir í öllum leikjum úrslitaviðureignanna en náði að koma til baka í fjögur af fimm skiptum. Jalen Brunson var án efa hetja leiksins en hann var einnig valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaviðureignarinnar. Þar fékk hann að meðaltali 32,6 stig en í lokaleiknum var hann með 45 stig. "AFTER 53 YEARS, THE KNICKS ARE FINALLY NBA CHAMPIONS ONCE AGAIN!"THE NEW YORK KNICKS WIN THEIR FIRST CHAMPIONSHIP SINCE 1973 🏆 pic.twitter.com/7JqXe4cU9e— NBA (@NBA) June 14, 2026 Brunson fagnaði vel og innilega og áttu hann og faðir hans fallega stund eftir leik. Rick Brunson er aðstoðarþjálfari Knicks en sem leikmaður Knicks komst hann í úrslit NBA árið 1999. Rick Brunson og félagar náðu ekki að vinna titilinn þá en sonur hans náði því 27 árum seinna. 1999: Rick Brunson and the Knicks reach the NBA Finals2026: Jalen Brunson and the Knicks win the NBA Finals27 years later… the son gets it done, with his father by his side. https://t.co/QeWBUHF4E7 pic.twitter.com/7uu5WgfNqL— NBA (@NBA) June 14, 2026 Leikmenn San Antonio Spurs geta verið svekktir út í sjálfa sig þar sem á tímabili í leiknum leiddi liðið með sextán stigum. Liðið byrjaði alla leiki mun betur en Knicks en eftir sem leið á leikina urðu Knicks betri. Yfir alla úrslitaviðureignina var Spurs með 57 stiga forskot eftir alla fyrstu leikhlutana. Hins vegar skoruðu Knicks fleiri stig í öllum þrem leikhlutunum sem varð Spurs að falli. Borgarstjóri New York er búinn að tilkynna að það verður skrúðganga til að fagna titlinum á fimmtudaginn. Það má búast við miklum fagnaðarlátum og gleði þar eftir 53 ára bið
NBA Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira