Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Andri Broddason skrifar 14. júní 2026 13:16 Frammistaða Breiðabliks var ekki nógu góð gegn Stjörnunni í gær. Vísir/Vilhelm Bestu mörkin voru á dagskrá eftir áttundu umferð Bestu deildar kvenna í gær og ræddu þar Jóhann Fjalar Skaptason, Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Magnús Haukur Haraldsson um stöðu Blika eftir að hafa misst efsta sæti deildarinnar.
Eftir tap Breiðabliks gegn Stjörnunni voru sérfræðingarnir sammála um að það hleypi spennu í mótið þar sem Breiðablik er ekki lengur á toppi deildarinnar. Bára Kristbjörg var ekki ánægð með frammistöðu Breiðabliks í leiknum. „Auðvitað viljum við hafa deildina opna en maður vill sjá frammistöðu Blika sem maður veit að er til staðar þarna inni. Þótt að þær séu með marga unga leikmenn á bekknum þá eru þær samt með það góða einstaklinga að frammistaðan á að vera betri.“ Sérfræðingarnir ræddu að Blikar þurfa að hafa einhverjar lausnir þegar aðalleikmaður liðsins, Agla María Albertsdóttir, er ekki miðpunktur spilamennskunnar. Bára Kristbjörg og Magnús Haukur voru bæði sammála um að Breiðablik væri að sækja of mikið upp kantinn. „Ég myndi skilja það að fara svona mikið upp vænginn ef þú værir með Bryndísi eða Ollu inni í teig. Ása er ekki þessi framherji og Líf ekki heldur. Þá þarftu að fara meira upp miðjuna eins og þær gerðu í markinu.“ Sérfræðingarnir báru leikinn saman við leik Breiðabliks og Vals fyrr á tímabilinu þegar Breiðablik náði góðum endurkomusigri 3-2. Þar voru tvö mörk skoruð í uppbótartíma en í þeim leik var meiri trú á því að vinna leikinn heldur en í gær. „Breiðablik hefur verið að tapa stigum á móti Stjörnunni síðustu tímabil þrátt fyrir að vera langefstar. Þetta er ekki nógu gott og við viljum betri frammistöðu,“ segir Bára Kristbjörg í lokin. Magnús Haukur vildi líka fá meiri karakter frá Ian David Jeffs, þjálfara Breiðabliks, eftir leik. „Hann verður að adressa hlutina sem voru ekki í lagi í staðinn fyrir að segja bara að hlutirnir hafi verið flatir.“ Umræðuna um Blika má sjá í heild sinni í spilaranum að neðan: Klippa: Bestu mörkin: umræða um Blika
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Sjá meira