Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu Aron Guðmundsson skrifar 15. júní 2026 23:02 Hamiton tárvotur eftir sigur í Katalóníu kappakstrinum. Fyrsti sigur hans sem liðsmaður Ferrari. Vísir/Getty Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari, hefur losað sig við djöflana sem ásóttu hann og er í bullandi titilbaráttu í Formúlu 1 að mati fyrrverandi heimsmeistara í mótaröðinni.
Hamilton kom sá og sigraði í Katalóníu kappakstrinum um nýliðna helgi og var um að ræða hans fyrsta sigur sem ökuþór Ferrari. Sá lét bíða eftir sér en hinn 41 árs gamli Hamilton hefur verið að gera fanta fína hluti á yfirstandandi tímabil og er að sækja á efsta mann stigakeppni ökuþóra. „Hann er í titilbaráttunni,“ sagði fyrrverandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Jacques Villeneuve, eftir sigur Hamilton í gær. „Hraðinn er til staðar. Það þarf því ekki mikið til og við vitum ekki hvernig ökuþórar Mercedes munu standa sig undir þessari pressu frá Hamilton. Nico Rosberg, einnig fyrrverandi heimsmeistari í Formúlu 1 og fyrrverandi liðsfélagi Hamilton hjá Mercedes tók í svipaðan streng og Villeneuve. „Með jákvæðm úrslitum verður drifkrafturinn meiri. Þú verður ánægðari, leggur harðar að þér. Þetta mun fara með Hamilton í hærri hæðir og sömuleiðis lið hans. Skriðþunginn er með þeim. Það er allt að falla fyrir Ferrari þessa stundina og það er það sem þarf til í Formúlu 1. Í umfjöllun Motorsport.com er farið yfir það hvernig litlu mátti muna að Hamilton hefði ákveðið að hætta í Formúlu 1 eftir síðasta tímabil þegar að hreint út sagt hörmulega gekk hjá honum á hans fyrsta tímabili sem ökuþór Ferrari. Bretinn, sem jafnframt er sjöfaldur heimsmeistari, hafi hins vegar notað vetrarfríið milli tímabila til þess að hreinsa hugann. „Hann fann innri ró og ákvað að koma eins vel undirbúinn og hann gat inn í yfirstandandi tímabil. Það sem var stillt upp sem hans síðasta tengingakasti. Þegar að hann hóf undirbúning fyrir tímabilið, labbaði inn um hliðið á Maranello hjá Ferrari á Ítalíu, segja heimildarmenn okkar innan Ferrari að þeir hafi séð allt annan mann heldur en tímabilið þar á undan. Mann sem virtist hafa losað sig við djöfla sína.“ Bíllinn sem Ferrari er með á þessu tímabili er sá fyrsti sem að Hamilton hefur geta haft áhrif á. Hann virðist í flæði með bíl sínum og virðist áhættan sem Ferrari, þá einna helst líðsstjórinn Fred Vasseur, tók með því að fá Hamilton til liðs við sig vera að borga sig. Aðeins fjörutíu og einu stigi munar á forystusauð stigakeppni ökuþóra, Kimi Antonelli hjá Mercedes, og Hamilton. Nú tekur við smá pása áður en keppni hefst aftur í mótaröðinni eftir tæpan hálfan mánuð í Austurríki. Sýn Sport Viaplay er heimili Formúlu 1 á Íslandi.
Akstursíþróttir Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira