Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júní 2026 09:04 Einn starfsmanna hjúkrunarheimilisins mætti með hestana Hörpu og Baug í vel heppnaða heimsókn til íbúa Lögmannshlíðar. Aðsend Íbúar Lögmannshlíðar, annars tveggja hjúkrunarheimila sem Heilsuvernd rekur á Akureyri, fengu óvenjulega og að sögn forstöðumanns einstaklega ánægulega heimsókn þegar komið var með hestana Baug og Hörpu í húsgarðinn. Þrír íbúanna skelltu sér á bak, aðrir klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð en heimsóknin vakti mikla lukku.
Í færslu sem birt var á Facebook-síðu Heilsuverndnar hjúkrunarheimilanna segir að „íbúarnir hafi notið samverustundarinna í góða veðrinu, klappað hestunum og gefið þeim brauð,“ þar segir einnig að „gleðin hafi skinið úr hverju andliti og að margir hafi rifjað upp gamlar minningar tengdar hestamennsku“ Greinilega engu gleymt Þeir Guðmundur Einarsson, Jósep Zophoníasson og Sigurður (Siggi) Ólafsson létu ekki sitt eftir liggja og skelltu sér á hestbak. „Það var greinilegt að þeir höfðu engu gleymt og sátu hestana af öryggi og ánægju. Heimsóknin vakti mikla lukku meðal íbúanna og skapaði notalega stund sem verður lengi í minnum höfð,“ segir Jóhanna Berglind Bjarnadóttir, forstöðumaður Lögmannshlíðar í skriflegu svari til fréttastofu. Lögmannshlíð samanstendur af fimm 9 manna heimilum Árgerði, Bandagerði, Kollugerði, Melgerði og Sandgerði. Heimilið er allt á einni hæð og á milli heimilanna eru lokaðir garðar þar sem íbúar geta notið sín, en aðgengi í garðinn er mjög gott. Myndaveislu frá deginum má sjá hér að neðan: Höskuldur Þorsteinsson til vinstri og Jósep Zophoníasson til hægri, sá síðarnefndi klappaði hestunum áður en hann ákvað að nýta tækifærið og skella sér á bak.Aðsend Guðmundur Einarsson hafði engu gleymt og tók sig ekkert smá gæjalega út á baki.aðsend Í skriflegu svari forstöðumanns segir að húsgarðurinn Bandagerðisgarður sé mikið sóttur af íbúum enda sé aðgengið gott.aðsend Hesturinn Baugur ásamt Sigga og Elínu Birnu, starfsmanni Lögmannshlíðar en hún segir í ummælunum undir færslunni að það sé „alltaf gaman að koma og gleðja fólkið“.Aðsend Sigurður Ólafsson var einn þeirra þriggja sem brá sér á bak, enda heilsuhraustur og flottur.Aðsend Það var glatt á hjalla og heimsóknin leið eflaust hratt enda oft talað um að hann geri það þegar gaman sé.Aðsend Heiða Björk Jónsdóttir var svo væn að gefa hestinum Baugi smá brauð að narta í.Aðsend Guðmundur var heldur betur til í að fara einn skreppitúr um húsgarð hjúkrunarheimilisins. Hann var einn þriggja sem skelltu sér á hestbak meðan á heimsókninni stóð.Aðsend
Eldri borgarar Dýr Hjúkrunarheimili Akureyri Samkvæmislífið Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira