Fótbolti

Elísa­bet tjáir sig: Grát­lega ná­lægt draumnum í þrí­gang

Sindri Sverrisson skrifar
Draumurinn um HM í Brasilíu er úti hjá Elísabetu og belgíska liðinu.
Draumurinn um HM í Brasilíu er úti hjá Elísabetu og belgíska liðinu. Getty/Mateusz Slodkowski

Framtíð Elísabetar Gunnarsdóttur sem þjálfari belgíska kvennalandsliðsins í fótbolta er í lausu lofti eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Pólverjum í undanúrslitum HM-umspilsins. Hún hefur enn óbilandi trú á belgíska liðinu þrátt fyrir „úrslit sem kramið hafa hjartað“.

Elísabet tók við Belgíu í byrjun árs 2025 og er með samning sem gilda átti fram yfir HM á næsta ári. Nú er HM-draumurinn úti og forráðamenn belgíska sambandsins, undir forystu Simon Mignolet, vega nú og meta hvort Elísabetu verði boðið að halda áfram þó að markmiðið um HM hafi ekki náðst.

Elísabet stýrði Belgum á EM í Sviss í fyrra þar sem liðið vann sigur gegn Portúgal en féll út í riðlakeppninni. Liðið féll svo úr A-deild Þjóðadeildarinnar eftir afar naumt tap í umspili gegn Írlandi, endaði fyrir neðan Skotland í undankeppni HM í sumar, á einu marki, og tapaði svo umspilinu gegn Póllandi eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni.

„Fyrir næstum ári, á Írlandi í október síðastliðnum, hófum við vegferð sem skilaði okkur tíu leikjum án taps. Vegferð sem byggðist á þrotlausri vinnu, trú og samheldni.

Samt höfum við þrisvar sinnum á þessu tímabili verið sárgrætilega nálægt því að ná því sem okkur dreymdi um. Þrisvar sinnum hefur minnsti mögulegi munur, markatala og vítaspyrnukeppni, staðið á milli okkar og þess árangurs sem við unnum svo hörðum höndum að.

Vonbrigðin eru mikil,“ skrifar Elísabet í pistli á Instagram.

Ekki er annað að heyra en að hún hafi mikinn áhuga á að þjálfa Belgíu áfram og koma liðinu ofar á blað meðal bestu þjóða Evrópu. Hún hefur auk þess fengið mikinn stuðning frá reynsluboltum belgíska liðsins, þeim Tessu Wullaert og Janice Cayman.

„Á morgun rís sólin á ný“

„Þegar maður gefur svona mikið, trúir svona innilega og kemst svona nálægt er erfitt að finna réttu orðin. Því þessi hópur átti meira skilið. Við vildum öll meira.

Til leikmanna minna og starfsfólks: Takk fyrir. Takk fyrir skuldbindinguna, traustið og fyrst og fremst fyrir þá tryggð sem við höldum áfram að sýna hvert öðru, óháð úrslitum. Fótboltinn mun alltaf bjóða upp á hæðir og lægðir, en það er á erfiðustu stundunum sem raunverulegur styrkur liðs kemur í ljós. Þau traustu bönd sem við höfum myndað skipta meira máli en orð fá nokkurn tíma lýst. Og þau verða lykillinn að endurkomu „Red Flames“-liðsins okkar!

Þrátt fyrir úrslit sem kremja hjartað er trú mín á þessu liði mjög sterk!

Hæfileikarnir eru miklir. Karakterinn er magnaður. Og möguleikar þessa hóps eru einstakir. Og þetta mun lyfta belgískri kvennaknattspyrnu í enn meiri hæðir.

Í dag finnum við fyrir vonbrigðunum. Á morgun rís sólin á ný,“ skrifar Elísabet.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×