„Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar 19. júní 2026 09:01 Fyrir ekki svo löngu síðan tók ég leigubíl frá heimili mínu niður í miðbæ Reykjavíkur. Bílstjórinn var ungur karlmaður sem spurði mig ýmissa spurninga um mína persónulegu hagi. Ég reyndi að stýra samtalinu annað en hann hélt áfram og vildi vita við hvað ég starfa. Ég sagðist reka félagasamtök sem vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Hann setti hljóðan en eftir stutta stund spurði hann mig; ,,Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?” Fimmtíu ár af vitundarvakningu Í meira en hálfa öld hefur kynbundið ofbeldi gegn konum verið í opinberri umræðu á Íslandi. Konur hafa haldið ráðstefnur, stofnað neyðarmóttökur, skipulagt mótmæli, fjármagnað rannsóknir, haldið úti fræðslu og hrundið af stað hverri vitundarvakningunni á fætur annarri. Öflugar kvennahreyfingar og grasrótarsamtök hafa áratugum saman leitt baráttu sem hefur knúið fram samfélagsbreytingar sem áður þóttu óhugsandi. Hvernig stendur þá á því að árið 2026 eru nauðganir enn jafn útbreitt samfélagslegt vandamál og raun ber vitni? Þegar ofbeldi verður að „misskilningi“ Vandamálið er ekki að karlmenn viti ekki að nauðgun sé röng heldur að þeir skilgreina ofbeldið sem þeir beita ekki sem ofbeldi. Í rannsóknum sem gerðar hafa verið á dæmdum nauðgurum kemur skýrt fram að mennirnir viðurkenna t.d að hafa haft samræði án samþykkis en hafna því að vera nauðgarar. Oft á tíðum nota þeir afsaknir á borð við „hún sagði ekki nei“, „ég hélt að hún vildi þetta“, „við vorum bæði drukkin“ og „ég misskildi aðstæðurnar“. Þeir lýsa sömu atburðum og þolandinn en setja aðra merkingu í þá. Í þeirra huga er nauðgari einhver annar maður. Einhver ofbeldisfullur og framandi, jafnvel nafnlaus ókunnug skrímsli. Þannig verður nauðgun auðveldlega smættuð í „misskilning“ fremur en ofbeldi. Það sem gerir þessar afsakanir svo áhrifamiklar er að þær virka sem sjálfsréttlæting og vörn gegn ábyrgð, bæði í samfélagslegu og réttarfarslegu samhengi. Þegar karlmaður segist hafa „misskilið aðstæður“ er hann ekki að neita verknaðinum heldur endurskilgreina hann. Þannig er merkingin orðin deiluefni fremur en atburðurinn sjálfur. Skapast hefur menning þar sem nauðgun er talin svo alvarleg að enginn vill kannast við hana, jafnvel þegar lýsingar á verknaðinum falla að lagalegri skilgreiningu hennar. Sjálfsskilningur geranda og túlkun hans á aðstæðum fær í raun meira vægi en reynsla þolanda, sérstaklega í réttarkerfinu. Hins vegar er það staðreynd að skaðinn er sá sami fyrir þolandann, óháð viðhorfi gerandi til verknaðarins. Hvað telst raunveruleg nauðgun? Páll Vilhjálmsson, fyrrum blaðamaður, kjarnar þetta gamalgróna viðhorf til nauðgana vel í bloggfærslu frá árinu 2015. Þar veltir hann fyrir sér hvað sé raunveruleg nauðgun og skáldar upp dæmi; „Kona sem ákveður af frjálsum vilja að taka þátt í kynlífi en snýst hugur í miðjum klíðum án þess að karlmaðurinn hætti fyrr en hann hefur lokið sér af gæti sem hægast upplifað reynslu sína sem nauðgun. En er það nauðgun?“ Svo skrifar hann; „Kynlíf getur meitt, bæði á sál og líkama. En vont og meiðandi kynlíf er ekki endilega nauðgun.“ Það sem gerir texta Páls áhugaverðan er að hann sýnir nákvæmlega sama mynstur og rannsóknir á gerendum. Hann lýsir athæfi sem upfyllir skilgreiningu nauðgunar en efast um hvort það sé nauðgun. Þetta eru það sem hann kallar í blogginu sínu „strákasjónarmið“. Ný rödd, sama hugsun Tenging færslu Páls við nútímann rann upp fyrir mér eftir spurningu leigubílstjórans; „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Í fyrstu hljómar þetta kannski eins og saklaus spurning en hún er mjög afhjúpandi. Hann spyr mig, bláókunnuga manneskju, vegna þess að mögulega er skilgreiningin á nauðgun ekki sjálfgefin í huga hans. Spurningin endurspeglar samfélag þar sem konur hafa í áratugi útskýrt hvað nauðgun er en sumir karlar hafa jafn lengi reynt að sannfæra sjálfa sig um að skilgreiningin eigi ekki við um það sem þeir gera. Það er ekki nóg að fordæma nauðgun í orði. Spurningin er hvað gerist þegar karlmenn fá kerfisbundið að draga úr alvarleika kynferðisofbeldis og færa umræðuna frá ábyrgð gerandans. Höfundur er stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi. Heimildir: https://journals.sagepub.com/doi/full/10.1177/1079063212453941 https://www.newsweek.com/campus-rapists-and-semantics-297463 https://www.althingi.is/lagas/147/1940019.html https://pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/1785400/ https://vidreisn.is/2017/09/samthykki-i-forgrunn-2/ https://www.althingi.is/altext/148/s/0010.html https://www.112.is/kynferdislegt-ofbeldi-og-areitni Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðný S. Bjarnadóttir Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar