Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Jakob Bjarnar skrifar 19. júní 2026 13:28 Arnar Benjamín, sem setið hefur í stjórn SÍK frá 2024, er nýkjörinn formaður SÍK. vísir/hulda margrét Kurr er í kvikmyndagerðarkonum en þeim þykir heldur karllæg stjórn og formaður sem kosin voru á aðalfundi í gær. Gunnar Sigurðarson, starfsmaður Sambands íslenskra kvimyndaframleiðenda (SÍK) og Samtaka iðnaðarins, segist ekki geta túlkað þetta sem svo að kvikmyndageirinn sendi kaldar kveðjur til kvenna. „
Nei, ég get ekki túlkað þetta þannig. Þarna eru um 70 félög sem eru að koma sér saman um hver verður formaður, einn verður ofan á en það var mjótt á munum og fór sem fór. Það er auðvitað skelfilegt þegar ekki er meira jafnræði milli kynja en þegar ekki eru reglur sem kveða á um annað getur þetta gerst,“ segir Gunnar. Hann vísar til sögunnar og segir að konur hafi verið meira áberandi áður. Fjölmennasti fundur SÍK frá upphafi Í gær var haldinn einn fjölmennasti fundur SÍK frá upphafi. Kosið var um formann en þrjú voru í framboði. Arnar Benjamín Kristjánsson varð hlutskarpastur og kosinn formaður en mótframbjóðendur voru Milla Ósk Magnúsdóttir og Grímar Jónsson. Afar mjótt var á munum og voru einungis nokkur atkvæði sem skildu þessa frambjóðendur að. Arnar hefur setið í stjórn SÍK frá 2024. Fráfarandi formaður, Anton Máni Svansson, var kjörinn meðstjórnandi ásamt Hilmari Sigurðssyni og Búa Baldvinssyni. Þá var einnig kosið um þrjú laus sæti til stjórnar og þau sem hlutu brautargengi voru: Anton Máni, Hilmar Sigurðsson og Búi Baldvinsson. Í framboði voru Anton Máni Svansson, fyrrum formaður stjórnar SÍK, Hilmar Sigurðsson, sem hefur verið gjaldkeri SÍK síðustu ár, Hrönn Kristinsdóttir, sem hefur setið í stjórn SÍK síðustu tvö ár, Birgitta Björnsdóttir, Skarphéðinn Guðmundsson, Sunna Guðnadóttir og Búi Baldvinsson. Gengur illa að fá fjármagn í verkefnin Gunnar segir þetta hafa verið flennikosningu og sjaldan hafi verið svona mikill áhugi á að komast í stjórn félagasamtaka eins og kvikmyndaframleiðenda. „Það merkir að það er pínu vetur í kvikmyndabransanum. Kvikmyndum hefur fækkað gríðarlega, þrengst hérna innanlands sem og erlendis.“ Gunnar segir vetur í íslenskri kvikmyndagerðarmenn, og þegar svo er, rétt eins og í hruninu, þá vilji allir leggja hönd á plóg og gera það sem þau geta.vísir/vilhelm Gunnar segir að varla séu framleiddir þættir eða kvikmyndir sem ekki henti stóru dreifingaraðilunum svo sem Netflix. Erfiðlega gengur að fá fjármagn í myndir og sjónvarpsþætti. En hvernig stendur þá á þessum áhuga? „Þetta er eins og þegar hrunið varð, við sáum aldrei fleiri framboð til Alþingis og þá. Þá vill fólk bjóða sig fram og reyna að bæta starfsumhverfið.“ Eindrægni meðal kvikmyndagerðarmanna Mikil eindrægni var meðal fundarmanna að sögn Gunnars og allir voru sammála, samstiga um að það væri hart í ári. „Við erum að mennta fólk í þessu. Við Íslendingar erum ægilega fín þjóð þegar kemur að frásögn og að segja sögur, skrifa bækur, segja sögur, nú kunnum við að búa til myndir. En það skortir fjármagn. Það er skelfileg staða, hvort sem við erum með rafvirkja eða að mennta fólk í fræðum sem það getur ekki unnið við. Ég hef fulla trú á því að allir átti sig á því að við megum ekki hætta að segja sögur, við elskum öll íslenska sjónvarpsþætti og myndir. Þetta skilja allir.“ Erfitt ástand í kvikmyndageiranum er ekki bara bundið við Ísland eitt, það er erfitt líka erlendis sem sýnir sig í því að hingað koma færri verkefni en verið hefur. „Þetta er skelfilegt ástand en gaman hversu samstiga hópurinn var. Allir vilja bransanum vel,“ segir Gunnar.
Kvikmyndagerð á Íslandi Félagasamtök Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira