Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. júní 2026 14:04 Georg Leite er viðmælandi í hlaðvarpsþættinum Eftirvaktinni. Vísir Georg Leite, sem margir þekkja sem Gogga á Kalda, er kominn á nýjan stað í lífinu. Ekki nýjan bar, heldur franskar vínekrur þar sem nöfn á borð við Jökul Júlíusson í Kaleo, Norah Jones og Tony Parker koma við sögu.
Goggi var gestur Eftirvaktarinnar, nýs hlaðvarps um fólkið á bak við íslenskt skemmti-, veitinga- og tónlistarlíf. Þar er ekki endilega rætt við fólkið sem stendur fremst á sviðinu, heldur líka þau sem hafa mótað stemninguna, staðina og bransann innan frá. Goggi passar vel inn í þann hóp. Brasilíumaðurinn sem festist á Íslandi Hann fæddist í Salvador í Brasilíu árið 1980 og kom til Íslands árið 1998 þar sem hann byrjaði í uppvaskinu á Kaffibrennslunni. Síðan þá hefur hann komið víða við; sem ljósmyndari, leikari, fyrirsæta, danskennari, viðskiptafræðingur og veitingamaður. Í miðbæ Reykjavíkur varð hann þó fyrst og fremst þekktur sem maðurinn á Kalda bar. Kaldi bar er á Klapparstíg í miðbæ Reykjavíkur. Vísir/Egill Kaldi var opnaður árið 2012 en nýir eigendur tóku við staðnum árið 2014. Barinn varð fljótt fastur punktur í miðbæjarlífinu, ekki síst fyrir bjórúrvalið, stemninguna og fólkið sem safnaðist þar saman. Goggi rak staðinn um árabil, meðal annars í kringum hóp manna sem einnig kom að rekstri annarra þekktra staða í miðbænum. Úr skarkala miðbæjarins í franskar vínekrur En nú hefur Goggi snúið sér að öðru, sem er fjær skarkala miðbæjarins en byggir að einhverju leyti á sama grunni: fólki, smekk og stemningu. Maison Wessman er vínverkefni Róberts Wessman, eins þekktasta athafnamanns Íslands, og teygir sig yfir nokkur vínsvæði í Frakklandi. Í Eftirvaktinni segir Goggi frá því að vínáhugi Róberts eigi sér lengri sögu en margir haldi. Róbert hafi ungur unnið í þjónustu, faðir hans hafi verið kokkur og sommelier og draumurinn um vínekru hafi fylgt honum lengi. Þegar hann hafði síðar burði til að láta drauminn verða að veruleika hafi hann farið að leita að rétta landinu í Frakklandi. Ekki endilega þar sem allir aðrir voru að horfa, heldur þar sem hann taldi næsta tækifæri geta legið. Úr varð verkefni sem nær meðal annars til Bergerac, Limoux og Champagne. Þar er unnið með rauðvín, hvítvín, rósavín, crémant og kampavín. Vín með nöfnum stórstjarna Þar koma stóru nöfnin inn. Jökull Júlíusson, söngvari Kaleo, hefur sett nafn sitt við vínlínu hjá Maison Wessman. Þar hefur verið unnið með rauð og hvít vín og Goggi segir að crémant sé einnig að bætast við. Norah Jones er tengd vínlínunni This Life. Tony Parker, fyrrverandi leikmaður San Antonio Spurs og fjórfaldur NBA-meistari, er svo kominn í kampavín með Róberti undir merkjunum TP9 og Four Rings. Goggi vinur með Jökli í Kaleo að víninu. Vísir/Viktor Freyr Samstarf Gogga og Róberts hófst í gegnum Jökul í Kaleo. Goggi segir að hann hafi verið að vinna að vínverkefni með Jökli þegar Róbert hafi séð eitthvað í nálgun hans; ekki endilega klassískan vínferil, heldur orku, metnað og hæfileika til að tengja saman fólk, stemningu og vörumerki. „Ég er ekki að sanna mig fyrir neinum en ég tek rosalega mikla ástríðu í það sem ég geri,“ segir Goggi í Eftirvaktinni. Hann segir það skipta litlu máli hvert verkefnið sé. Þegar hann taki eitthvað að sér fari hann alla leið. „Ef ég ákveð eitthvað þá helga ég mig því.“ „Mér líður bara miklu betur á Íslandi“ Sama hugsun virðist hafa fylgt honum á Íslandi. Goggi hefur tvisvar reynt að fara aftur til Brasilíu en segir að hann hafi ekki fundið sig þar. Ísland hafi reynst honum betur, þótt það hafi ekki alltaf verið auðvelt. „Mér líður bara miklu betur á Íslandi,“ segir hann. Georg ásamt samstarfsfólki sínu á Kalda.Kaldi Veðrið sé verra, en samfélagið betra fyrir hann. Hann hafi þurft að sanna sig, en upplifunin hafi verið sú að hér skili það sér að standa sig. „Ísland er sanngjarnt að því leyti að ef þú ert heiðarlegur og góður, þá kemur það til baka.“ Goggi talar um Kalda á svipaðan hátt og hann talar um vínið. Þetta hafi aldrei fyrst og fremst byrjað á peningunum. Fyrst hafi komið fólkið, stemningin og löngunin til að gera eitthvað vel. Nú er Goggi kominn í allt annan heim. Í stað þess að standa vaktina á Kalda vinnur hann nú að frönsku vínverkefni þar sem íslenskir athafnamenn, alþjóðlegir tónlistarmenn og fyrrverandi NBA-stjarna koma við sögu.
Áfengi Næturlíf Veitingastaðir Kaleo Reykjavík Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Sjá meira