Golf

Gífur­leg spenna á loka­degi U.S. Open

Aron Guðmundsson skrifar
Wyndham Clark og Sam Burns eru að berjast um toppsætið á U.S. Open þessa stundina.
Wyndham Clark og Sam Burns eru að berjast um toppsætið á U.S. Open þessa stundina. Vísir/Getty

Gífurleg spenna er ríkjandi á lokadegi U.S. Open risamótsins í golfi. Aðeins eitt hög skilur að efstu menn sem eru komnir vel á veg með lokahring sinn á mótinu.

U.S. Open er sýnt í beinni útsendingu á Sýn Sport.

Lokadagur mótsins á Shinnecock Hill vellinum hefur boðið upp á mun meiri spennu heldur en leit út fyrir að yrði ríkjandi fyrir lokadaginn í dag. 

Wyndham Clark, sem vann mótið árið 2023, er í forystunni og hefur verið það nær allt mótið. Fyrir daginn í dag var hann með sex högga forystu en fugla þurrð sem og fjórir skollar á lokahringnum hafa orðið til þess að forysta hans hefur skroppið saman í aðeins eitt högg og er hann nú á fjórum höggum undir pari. 

Sam Burns hefur á sama tíma verið að spila frábærlega og jafnt og þétt sótt að Clark. Burns náði í fjóra fugla á fyrstu níu og fékk aðeins einn skolla á krefjandi vellinum. 

Burns er í ráshópnum á undan Clark og er þegar þetta er skrifað búinn að spila tólf af átján holum vallarins á þessum lokahring og er á þremur höggum undir pari. Clark er skemur á veg kominn, fer að ljúka fyrri níu holum vallarins hvað úr hverju.

Næst á eftir Clark og Burns kemur þéttur pakki kylfinga á einu höggi undir pari og allt opið fyrir lokaholur þessa frábæra risamóts. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×