Liðsfélagi Fanneyjar og Thelmu verður sú dýrasta í sögunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júní 2026 10:31 Felicia Schröder er mikill markaskorari og er henni ætlað stjörnuhlutverk hjá Real Madrid næstu árin. Getty/Jess Hornby Hin stórefnilega Felicia Schröder mun yfirgefa sænsku meistarana í Häcken og ganga til liðs við Real Madrid.
Sænskir fjölmiðlar segja að Schröder verði dýrasti leikmaður sögunnar í kvennaflokki og félagið hennar staðfestir það. „Þetta er söguleg sala sem styrkir bæði kvennaknattspyrnuna og stöðu BK Häcken á alþjóðavettvangi,“ sagði Martin Ericsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá BK Häcken, í yfirlýsingu. Hin nítján ára Schröder varð markadrottning sænsku deildarinnar með 30 mörk í 26 leikjum og þrettán mörkum meira en næsta kona og í sumar er hún komin með sjö mörk í níu leikjum. „Það hefur verið heiður að fá að taka þátt í upphafi atvinnumannaferils Feliciu, þar sem við höfum átt ótrúlega vegferð saman, með titlum, sigrum og fjölda marka,“ sagði Ericsson. BK Häcken säljer Felicia Schröder 🐝19-åringen lämnar BK Häcken i den dyraste övergången någonsin inom damfotbollen. Anfallaren flyttar till Real Madrid i den spanska högstaligan.Stort lycka till, Felicia Schröder 💛🖤🔗 Se intervjun ⤵️https://t.co/sCR4YXfsjS#bkhäcken pic.twitter.com/YdhYjOKtyw— BK Häcken (@bkhackenofcl) June 23, 2026 Schröder var liðsfélagi íslensku landsliðskvennanna Fanneyjar Ingu Birkisdóttur og Thelmu Karenar Pálmadóttur hjá Häcken. Schröder skrifaði undir samning við aðallið Häcken árið 2023 og hefur skorað mörk í hrönnum í nokkur tímabil auk þess að hafa unnið sænska meistaratitilinn. „Ég get ekki þakkað nógsamlega fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt frá upphafi, segir hún. Frá þjálfurunum, liðsfélögunum og öllum í klúbbnum sem leggja hart að sér á hverjum degi til að við höfum það eins gott og mögulegt er. Þau hafa skipt öllu máli,“ sagði hún. Ekki hefur verið tilkynnt nákvæmlega hver upphæðin er en samkvæmt sænska ríkisútvarpinu er kaupverðið yfir 15 milljónir sænskra króna. Sportbladet hefur einnig heimildir fyrir því að kaupverðið sé yfir 15 milljónir. Þar með slær það met Orlando Pride upp á 1,3 milljónir evra, um 14 milljónir sænskra króna, fyrir Lizbeth Jacqueline Ovalle. Samningurinn við Real Madrid gildir til 30. júní 2030.
Sænski boltinn Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira