Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson skrifar 28. júní 2026 13:32 Skóflustunga vegna byggingar á nýrri álmu við Sjúkrahúsið á Akureyri, SAk er mikið fagnaðarefni. Með því hefst framkvæmdin formlega og eru það tímamót sem lengi hefur verið stefnt að og marka upphafið að einu mikilvægasta heilbrigðisverkefni á landsbyggðinni. Ný legurýmaálma við SAk Uppbygging nýrrar legurýmaálmu við SAk er ekki aðeins framkvæmd sem snertir Akureyri eða Norðurland, heldur snýr það að heilbrigðisöryggi þjóðarinnar allrar. Sjúkrahúsið á Akureyri gegnir lykilhlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi, bæði sem sérgreinasjúkrahús, kennslusjúkrahús og varasjúkrahús landsins. Þess vegna skiptir miklu máli að þar sé byggð upp aðstaða sem stenst kröfur nútímans og framtíðarinnar. SAk er hornsteinn heilbrigðisþjónustu á Norður- og Austurlandi og þjónar víðfeðmu landsvæði. Þar er veitt bráðaþjónusta, almenn sjúkrahúsþjónusta og sérhæfð þjónusta sem skiptir sköpum fyrir íbúa utan höfuðborgarsvæðisins. En hlutverk sjúkrahússins nær lengra. Það er hluti af öryggisneti landsins alls. Sem varasjúkrahús landsins þarf SAk að geta brugðist við þegar á reynir, hvort sem um er að ræða álag á heilbrigðiskerfið, náttúruvá, hópslys eða aðrar aðstæður þar sem nauðsynlegt er að dreifa verkefnum og tryggja áfallaþol samfélagsins. Gott starfsumhverfi Ný legurýmaálma mun bæta aðstöðu sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks. Hún mun skapa betri aðstæður til meðferðar, endurhæfingar, hjúkrunar og daglegs starfs. Góð aðstaða skiptir máli fyrir gæði þjónustunnar, öryggi sjúklinga og starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks. Á tímum þar sem samkeppni um fagfólk er mikil er ekki síður mikilvægt að heilbrigðisstofnanir geti boðið upp á aðstöðu sem styður við fagmennsku, starfsánægju og metnað. Jafnt aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu Framtíðarsýn fyrir SAk snýst einnig um menntun og rannsóknir. Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús og hefur þegar mikilvægu hlutverki að gegna í menntun heilbrigðisstétta. Þar fer fram kennsla, starfsþjálfun og sérnám sem styrkir heilbrigðisþjónustuna til framtíðar. Það er eðlilegt að horfa til þess að efla þetta hlutverk enn frekar og ræða af fullri alvöru stöðu SAk sem háskólasjúkrahúss. Slíkt myndi styrkja tengsl heilbrigðisþjónustu, háskólasamfélags, rannsókna og nýsköpunar á Norðurlandi og um leið auka fjölbreytni og burði íslenska heilbrigðiskerfisins. Uppbygging SAk er því ekki staðbundið hagsmunamál. Hún er byggðamál, heilbrigðismál, menntamál og öryggismál. Hún snýst um jafnt aðgengi landsmanna að þjónustu, um sterka innviði utan höfuðborgarsvæðisins og um það að Ísland hafi heilbrigðiskerfi sem stendur traustum fótum þegar mest á reynir. Tímamót Nú þegar undirskrift vegna jarðvinnu liggur fyrir og framkvæmdin hefst formlega ber að fagna þessum tímamótum. Þau eru afrakstur margra ára vinnu, undirbúnings og baráttu. En jafnframt minna þau okkur á að stór framfaraskref verða ekki til af sjálfu sér. Þau verða til með skýrri stefnu, samstöðu og þrautseigju. Það hefur verið langt ferli að koma þessu mikilvæga verkefni á þann stað að framkvæmdir geti hafist. Að baki liggur mikill undirbúningur, áætlanagerð og samtal milli stjórnvalda, stofnana og fagfólks. Slík vinna sést ekki alltaf utan frá, en hún er forsenda þess að stór opinber framkvæmd af þessu tagi geti orðið að veruleika. Verkefnið hefur kallað á skýra sýn, þrautseigju og pólitíska eftirfylgni sem ég er stoltur af að hafa komið að. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjúkrahúsið á Akureyri Akureyri Heilbrigðismál Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson Skoðun Dauði eða upprisa Jón Bragi Gunnlaugsson Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon Skoðun Þjóðin á síðasta orðið Erna Kaaber Skoðun Um þöggun Hörður Torfason Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Dauði eða upprisa Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þjóðin á síðasta orðið Erna Kaaber skrifar Skoðun Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Um þöggun Hörður Torfason skrifar Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon skrifar Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Sjá meira
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar
Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar
Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun