Hermann látinn taka pokann sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2026 12:29 Hermann Hreiðarsson á hliðarlínunni í leik Vals gegn KR í sumar. Vísir/Diego Hermanni Hreiðarssyni hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara meistaraflokks karla hjá Valsmönnum. Halldór Árnason, fyrrverandi þjálfari Breiðabliks, tekur við Val í nóvember.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Val sem sjá má í heild sinni að neðan. Tilkynnt var um ráðningu Hermanns í byrjun nóvember og hefur hann því verið þjálfari Vals í átta mánuði. Hann skrifaði þá undir þriggja ára samning við Vals. Valsmenn sitja í 5. sæti Bestu-deildarinnar í knattspyrnu eftir þrettán leiki. Valur vann 4-2 sigur á Þór Akureyri í síðasta leik sínum undir stjórn Hermanns en liðið er með sex sigra og sex töp í þessum þrettán leikjum. Hermann þjálfaði áður HK, ÍBV og Þrótt Vogum, og enn áður karla- og kvennalið Fylkis, en hann er 51 árs. Hermann gerði þriggja ára samning við HK í nóvember 2024 en hætti með liðið eftir aðeins eitt tímabil. Hann hafði áður stýrt Eyjaliðinu í þrjú ár en hætti með liðið þegar hann flutti upp á land. Tilkynningin í heild að neðan Stjórn knattspyrnudeildar Vals hefur ákveðið að gera breytingar á þjálfarateymi meistaraflokks karla. Hermann Hreiðarsson hefur látið af störfum sem aðalþjálfari liðsins og mun Christopher Brazell og þjálfarateymið stýra liðinu út keppnistímabilið. Jafnframt hefur Valur gengið frá ráðningu Halldórs Árnasonar sem tekur við starfi aðalþjálfara 1. nóvember næstkomandi. „Eftir ítarlegt mat á stöðunni er það niðurstaða okkar í stjórn að gera þessa breytingu núna. Við þökkum Hemma fyrir hans framlag til félagsins og óskum honum alls hins besta,“ segir Styrmir Þór Bragason, formaður knattspyrnudeildar Vals. Christopher Brazell, sem verið hefur aðstoðarþjálfari liðsins, mun stýra liðinu út yfirstandandi tímabil ásamt þjálfarateyminu. „Chris er góður þjálfari sem þekkir bæði leikmannahópinn og félagið vel. Hann hefur á stuttum tíma orðið mikilvægur hluti af því sem við erum að gera og við erum honum afar þakklát fyrir að taka að sér þetta verkefni á þessum tímapunkti. Nú snýst þetta um að þjappa hópnum saman, ná fram því besta og klára tímabilið af krafti. Við höfum fulla trú á strákunum í því verkefni.“ Samhliða þessum breytingum hefur Valur gengið frá ráðningu Halldórs Árnasonar sem næsta aðalþjálfara liðsins. „Ég held að allir sem fylgst hafa með íslenskum fótbolta viti hversu öflugur þjálfari Halldór Árnason er. Samningurinn er til fimm ára og það sem er óvenjulegt er að hvorugur aðili getur sagt honum upp fyrstu átján mánuðina. Slík ákvæði eru afar sjaldgæf í íslenskum fótbolta en endurspegla það traust sem ríkir á milli aðila og þá sameiginlegu sýn sem við höfum á verkefnið. Við erum að taka ákvarðanir fyrir framtíðina og þessi ráðning endurspeglar það,“ segir Styrmir. Halldór hefur sannað sig sem einn færasti þjálfari landsins en hann gerði m.a. Breiðablik eftirminnilega að Íslandsmeisturum árið 2024 og stýrði liðinu í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. „Ég lít á þetta sem mikinn heiður og viðurkenningu á því sem ég stend fyrir sem þjálfari. Valur er eitt stærsta og sögufrægasta félag landsins og ég hef fylgst með og heillast af þeim breytingum sem eru að eiga sér stað á Hlíðarenda. Við höfum átt góð samtöl og ég finn að sýn okkar á leikinn, leikmannaþróun og uppbyggingu félagsins fer mjög vel saman. Ég er virkilega spenntur fyrir því að hefja störf og láta til mín taka,“ segir Halldór. Halldór mun ekki taka við liðinu fyrr en að loknu yfirstandandi tímabili. „Það er auðvitað engin óskastaða að gera breytingar á þjálfarateyminu á þessum tímapunkti en þegar ljóst var að Halldór væri klár þá töldum við best að hann kæmi ekki inn fyrr en að loknu tímabili. Á sama tíma þykir okkur mikilvægt að skapa ákveðinn skýrleika um framtíðina. Nú vita allir hvernig þetta verður hjá okkur og það mun hjálpa okkur í því verkefni sem við erum með í höndunum,“ segir Styrmir. Halldór Árnason mun ekki veita viðtöl vegna ráðningarinnar fyrr en hann hefur formlega störf hjá félaginu 1. nóvember næstkomandi. Fjölmiðlum er bent á Styrmi Þór Bragason formann knattspyrnudeildar Vals.
Valur Besta deild karla Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Sport Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Sjá meira