Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Agnar Már Másson og Birgir Olgeirsson skrifa 30. júní 2026 16:22 Fíkniefnin fundust í sjókistu undir skipinu Koznitza, sem er súrálfluttningaskip sem siglir undir maltneskum fána. Navibulgar Lögregla réðst í húsleit víða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á 106 kílógrömmum af kókaíni sem fundust í álflutningaskipi við álverið í Straumsvík í síðustu viku. Níu hafa verið handteknir. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu en virði fíkniefnanna er metið á hátt í þrjá milljarða króna.
Þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar eru í haldi lögreglunnar vegna innflutnings á rúmlega hundrað kílóum af fíkniefnum sem voru flutt sjóleiðis Suður-Ameríku með álflutningaskipi til Straumsvíkur. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um skipið Koznitza að ræða en það kom frá Brasilíu og siglir nú til Kotka í Finnlandi. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu. Efnið var falið í sjókistu undir skipinu, að því er sagði í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. E. Agnes Eide, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að hinir handteknu séu allir karlmenn á þrítugs- fertugs- og fimmtugsaldri. Hún vildi ekki svara hvort hinir handteknu hefðu áður komið til sögu lögreglu. Elín Agnes Eide, yfirlögregluþjónn á rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Vísir/Sigurjón Flókin rannsókn Rannsóknin hafi staðið yfir í nokkrar vikur en skipið hafði lagt við höfn á mánudag í byrjun síðustu viku. „Þetta er gríðarlega flókin rannsókn sem er búin að eiga sér stað hérna, mikil vinna sem verður til þess að leiða okkur á þessa braut,“ segir E. Agnes. Ljóst sé að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða. Mynd úr safni. Kókaín hefur haft það orð á sér að vera fíkniefni ríka mannsins sökum þess hversu dýrt það er en markaðsverð er talið vera á bilinu 20 til 25 þúsund krónur á grammið.vísir/anton brink Agnes vildi ekki svara því hvernig efnin hefðu fundist í sjókistu súrálsskipsins, sem er eins konar hólf undir kili skipsins. Hún vildi heldur ekki segja hvort kafarar lögreglu hefðu komið að málinu eða hvort hinir grunuðu hefðu einhvers konar kunnáttu til þess að kafa eftir efnunum. Lögreglan hafi notið aðstoðar sérfræðinga hjá Europol og sérsveitarmanna hjá embætti Ríkislögreglustjóra. Ekkert bendi þó til þess að hinir handteknu tengist álverinu í Straumsvík með beinum hætti en Agnes setur þann fyrirvara að rannsóknin sé stutt á veg komin. Réðust í húsleit víða Lögregla hafi ráðist í húsleit víða. „Við erum búin að fara í talsvert af húsleitum [svo] og leit í bílum,“ segir hún. „Það eru talsvert margir staðir. Við höfum verið mest hér á höfuðborgarsvæðinu.“ Eruð þið búin að fara í einhverjar aðgerðir erlendis vegna þessa máls? „Það gefur auga leið að svona mál teygir anga sína víða og, enn og aftur, við erum bara að byrja.“ Frá ISAL í Straumsvík, álveri Rio Tinto.Sigurjón Ólason Enginn hafi þó verið handtekinn erlendis í tengslum við málið. Þar sem rannsókn stendur enn yfir vilji lögreglan ekki veita nánari upplýsingar um þjóðerni hinna handteknu. Miklir peningar undir Ef þú setur þetta mál í samhengi — þetta eru 106 kíló af kókaíni — hversu stórt er það á íslenskan mælikvarða? „Gríðarlega stórt og miklir peningar sem fara ekki í vasa skattgreiðenda,“ segir Elín Agnes. „Þetta er stærsta mál frá upphafi, mesti kílóafjöldi sem hefur verið haldlagður í svona máli,“ bætir hún við. Erfitt sé að segja til um hversu miklir fjármunir séu þarna undir. „Við erum að horfa á milli tveir til þrír milljarðar,“ segir Agnes. Ef miðað er við það að markaðsverð á kókaíni sé á bilinu 20 til 25 þúsund krónur fyrir grammið má gera ráð fyrir að markaðsvirði sendingarinnar sé á bilinu 2,1 til 2,7 milljarðar króna.
Lögreglumál Fíkniefnabrot Smygl Hafnarfjörður Straumsvíkurmálið Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira