Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Freyja Þórisdóttir skrifar 1. júlí 2026 12:11 Ekki liggur fyrir hver upptök eldsins voru. AP Eldur kom upp í tíu hæða fjölbýlishúsi í belgísku borginni Antwerpen um klukkan átta í morgun en áætlað er að um tvö hundruð manns búi í húsinu. Þegar hafa nokkrir verið úrskurðaðir látnir en enn er leitað að fórnarlömbum. Meðal þeirra sem hefur verið bjargað úr húsinu er fyrrverandi borgarstjóri borgarinnar.
Breska ríkisútvarpið (BBC) hefur eftir belgísku lögreglunni að nokkrir hafi látist og einnig séu einhver fjöldi fólks slasaður en slökkviliðsmenn fara sem stendur á milli íbúða til að leita að mögulegum fórnarlömbum. Þykkur reykur sem virðist hafa átt upptök sín á áttundu hæð hússins hefur gert viðbragðsaðilum erfitt fyrir og hefur íbúi sagt í samtali við belgíska ríkisútvarpið að hann hafi hann hafi ekki komist út úr íbúðinni vegna reyksins. „Við byrgðum okkur inni í íbúðinni og biðum á svölunum. Slökkviliðið kom til að bjarga okkur af svölunum um 10 mínútum síðar með stiga sínum,“ er haft eftir honum í frétt BBC. Hér fyrir neðan má sjá myndband af vettvangi frá fréttaveitunni AP. Meðal þeirra sem hefur verið bjargað úr byggingunni er Bob Cools, fyrrverandi borgarstjóri Antwerpen, en hann var fluttur rakleiðis á sjúkrahús. Staðbundnir miðlar svo sem De Standaard hafa greint frá því að belgíska lögreglan segi of snemmt að segja til um hver eldsupptök hafi verið. Marie de Clercq, talskona slökkviliðsins í Antwerpen, hefur sagt að um flókinn eldsvoða sé að ræða og að sem fyrr segir hafi slæmt skyggni og þykkur reykur í byggingunni gert slökkvismönnum erfitt fyrir.
Belgía Slökkvilið Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira