Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 1. júlí 2026 14:08 Rannsókn málsins hafði staðið yfir í nokkrar vikur en skipið hafði lagt við höfn á mánudag í byrjun síðustu viku. Sigurjón Ólason Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli.
Greint var frá því í gær að þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar væru í gæsluvarðhaldi í tengslum við innflutning á 106 kílógrömmum af kókaíni sem flutt var til landsins með álflutningaskipi sem kom til hafnar mánudaginn 22. júní. Lárus Freyr Einarsson er einn þeirra sem eru í haldi lögreglu í kjölfar aðgerðanna sem blásið var til síðastliðinn fimmtudag eftir að lögregla hafði fylgst með einstaklingum fjarlægja efnin sem falin voru í skjólkistu á botni skipsins. Lárus Freyr hlaut fjórtán ára fangelsisdóm í Danmörku fyrir að bana móður fyrrverandi unnustu sinnar árið 2011. Rúv greindi fyrst frá en heimildir fréttastofu staðfesta þetta. Þrjátíu af þeim rúmlega hundrað kílóum kókaíns eru sögð hafa fundist í bíl á vegum Lárusar sem starfar sem rafvirki. Lárus hefur áður komið við sögu lögreglu við rannsókn á fíkniefnamáli. Hann var árið 2020 úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um aðild að umfangsmiklu sakamáli sem sneri meðal annars að framleiðslu fíkniefna í sumarbústað í Kjós og peningaþvætti. Hann var ekki ákærður í málinu en aðrir hlutu þunga dóma. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu og þeirri sem greint var frá í gær. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um skipið Koznitza að ræða en það kom frá Brasilíu og siglir nú til Kotka í Finnlandi. Fimm hlutu dóma í næststærsta kókaínmáli Íslandssögunnar eftir að lagt var hald á um hundrað kíló af kókaíni sem falin voru í trjádrumbum og siglt til Íslands frá Brasilíu með viðkomu í Hollandi. Lögregla skipti efnunum út fyrir gerviefni sem í Amsterdam áður en ráðist var í handtökur á Íslandi eftir að efnin komu til landsins. Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn, var undir smásjá lögreglu í því máli. Hann er búsettur í Brasilíu og var dæmdur í fangelsi fyrir fíkniefnabrot árið 2024. Nú líkt og þá bárust um hundrað kíló af kókaíni til Íslands frá Brasilíu þó ekkert hafi komið fram um aðild Sverris að nýja málinu. E. Agnes Eide, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að hinir handteknu í Straumsvíkurmálinu séu allir karlmenn á þrítugs- fertugs- og fimmtugsaldri.
Smygl Lögreglumál Fíkniefnabrot Hafnarfjörður Danmörk Straumsvíkurmálið Tengdar fréttir Lögregla heldur fjórum í varðhaldi en sleppir tveimur Fjórir karlmenn, sem grunaðir eru um aðild að umfangsmiklu sakamáli sem snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti, voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 31. janúar 2020 15:42 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira
Lögregla heldur fjórum í varðhaldi en sleppir tveimur Fjórir karlmenn, sem grunaðir eru um aðild að umfangsmiklu sakamáli sem snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvætti, voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 31. janúar 2020 15:42