Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. júlí 2026 07:03 Alyssa Thomas finnst bannið sem hún fékk fyrir að brjóta á Caitlin Clark ósanngjarnt. getty/Andy Lyons Alyssu Thomas, leikmanni Phoenix Mercury, hafa borist morðhótanir og hún hefur orðið fyrir kynþáttaníði eftir að hafa brotið á Caitlin Clark í leik gegn Indiana Fever í WNBA-deildinni í Bandaríkjunum.
Í leik liðanna í síðustu viku kýldi Thomas Clark í hálsinn en slapp við refsingu meðan á viðureigninni stóð. Eftir leikinn og mikla umræðu um hversu hart mótherjar Clarks fengju að ganga fram gegn henni var Thomas úrskurðuð í eins leiks bann. Thomas er ósátt við bannið og gagnrýnir yfirmann WNBA, Cathy Engelbert, fyrir að verja leikmenn ekki nægilega vel fyrir netníði. „Það er miður að þetta hafi komið upp í tengslum við körfubolta. Mörg okkar, þar á meðal ég, vissum ekki hvað hafði gerst fyrr en eftir leikinn,“ sagði Thomas. „Við höfum fengið morðhótanir. Það er óafsakanlegt. Þetta þarf að breytast í deildinni og ég er búin að fá mig fullsadda af þessu.“ Thomas segir að það hafi aldrei verið ásetningur sinn að meiða Clark og finnst Engelbert ekki hafa tekið vel á eftirmálum atviksins. „Fólk sendir okkur rasísk skilaboð og hatrið sem við höfum fengið vegna einhvers sem var algjört óviljaverk. Við höfum enn ekkert heyrt í Cathy. Það kemur ekkert á óvart. Þú getur séð það sem er á samfélagsmiðlum. Eins og venjulega segir hún ekki neitt,“ sagði Thomas. Eftir leikinn í síðustu viku kvartaði þjálfari Fever, Stephanie White, yfir meðferðinni sem henni finnst Clark fá frá dómurunum í WNBA og sagði þá sýna henni vanvirðingu. Thomas, sem varð Ólympíumeistari með Bandaríkjunum 2024, gekk í raðir Mercury í fyrra. Mercury er í 12. sæti WNBA-deildarinnar af fimmtán liðum. Hin 34 ára Thomas er með 14,7 stig, 6,6 fráköst og 8,4 stoðsendingar að meðaltali í leik á þessu tímabili.
WNBA Mest lesið Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Körfubolti Skoraði mikilvægt mark fyrir Bandaríkjamenn en fékk svo rautt spjald Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Fótbolti Fleiri fréttir Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Sjá meira