Búinn að hlaupa allar götur í Reykjavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2026 10:24 Þorleifur Þorleifsson er Íslandsmethafi í bakgarðshlaupum. Vísir/Sigurjón Ofurhlauparinn Þorleifur Þorleifsson náði stórmerkilegum áfanga í gær, á öðrum degi júlímánuðar, og sagði frá því á samfélagsmiðlum sínum. „
Fyrir sjö árum skráði ég mig inn á CityStrides og byrjaði að „safna“ götum í Reykjavík. Ég setti mér ekkert markmið um að gera þetta á mettíma, heldur dundaði ég mér bara við þetta inn á milli,“ skrifaði Þorleifur. „Í vor ákvað ég hins vegar að taka þetta föstum tökum. Í dag hljóp ég svo síðustu götuna – allar götur í Reykjavík afgreiddar,“ skrifaði Þorleifur og hann birtir sönnun með korti af borginni inni á CityStrides þar sem sjá má að allar götur borgarinnar eru orðnar bláar. Hvað eru þetta margar götur? Jú, þær eru 1077 talsins og til að hlaupa þær allar þurfti Þorleifur að hlaupa samtals 483,8 kílómetra. Þorleifur er þekktastur fyrir frábæran árangur sinn í bakgarðshlaupum en hann setti Íslandsmetið þegar hann kláraði 62 hringi. Þorleifur, sem vann fyrsta bakgarðshlaupið árið 2020, hefur líka oftar en einu sinni fagnað sigri á Íslandsmótinu auk þess að vinna önnur ofurhlaup á ferlinum. Hann keppti fyrir Íslands hönd á síðasta HM einstaklinga. Þorleifur er ekki sá fyrsti til að ná þessu. Vera Illugadóttir, fjölmiðlakona sem er einna þekktust fyrir hlaðvarpið Í ljósi sögunnar, hljóp allar göturnar í Reykjavík fyrr í vor. View this post on Instagram A post shared by Thorleifur Thorleifsson (@thorleifur.thorleifsson)
Hlaup Reykjavík Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Fleiri fréttir Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Dagskráin í dag: Breiðablik getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn Sextán ára stjarna Vals heillar Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Sjá meira