Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2026 17:46 Íslenska liðið fagnar sigrinum í leikslok en þær áttu rosalegan lokaleikhluta. KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands Íslenska tuttugu ára landsliðið í körfubolta byrjaði frábærlega á EuroBasket en þær eru að keppa í A-deild Evrópumóts U20.
Íslensku stelpurnar unnu Serbíu með fjögurra stiga mun, 78-74, í sínum fyrsta leik eftir að hafa unnið fjórða leikhlutann með þrettán stigum, 28-15. KR-ingurinn Rebekka Rut Steingrímsdóttir skoraði 27 stig í leiknum, Njarðvíkingurinn Hulda María Agnarsdóttir var með 19 stig og fjóra þrista og Stjörnukonan Berglind Katla Hlynsdóttir bætti við 18 stigum. Íslenska liðið vann með sextán stigum þær mínútur sem Hulda spilaði. Allar þessar þrjár eru að spila stórt hlutverk með liðum sínum í Bónus deild kvenna og Rebekka Rut er A-landsliðskona. Meðalaldur íslensku leikmannanna er 17,9 ár sem gerir sigurinn enn skemmtilegri. Liðsheildin var til fyrirmyndar í þessum sigri. Sextán þjóðir hafa áunnið sér rétt til að taka þátt og leika í A-deildinni í fjórum riðlum en stelpurnar okkar eru í C-riðli þar sem þær leika gegn Serbíu, Póllandi og Ítalíu. Eftir riðlakeppnina verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi allra liða. 30 þjóðir taka þátt í U20 EuroBasket stúlkna árið 2026, 16 þjóðir í A-deild og 14 þjóðir í B-deild.
Landslið kvenna í körfubolta Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Sjá meira