„Maður hefur spilað körfubolta lengi“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 5. júlí 2026 16:54 Jón Axel Guðmundsson átti stórleik þegar Ísland rétt vann Bretland í undankeppni heimseistaramótsins í körfubolta. Vísir / Anton Brink Jón Axel Guðmundsson átti stórleik fyrir Ísland þegar liðið vann glæsilegan 88-86 endurkomusigur á Bretlandi í Manchester í dag og tryggði sér þannig sæti í seinni umferð undankeppni HM 2027. „
Mér fannst við bæta varnarleikinn svolítið mikið í seinni hálfleik og það var svona það sem skóp þennan sigur fyrir okkur,“ sagði Jón Axel, sem var með 25 stig og átta fráköst, í samtali við RÚV eftir leikinn. Eftir slakan fyrri hálfleik bætti íslenska liðið sig í síðari hálfleik og tókst að lokum að knýja fram dramatískan og mikilvægan sigur. Hvað rædduð þið í hálfleik? „Við ræddum að við værum búnir að spila hræðilega vörn á móti Ítalíu og værum búnir með þrjá hálfleiki með slakri vörn. Við ætluðum að koma árásargjarnir og brjálaðir. Við vissum að þetta væri úrslitaleikur þannig að við komum brjálaðir inn í seinni hálfleik. Við hefðum þurft að gera það frá byrjun leiks,“ sagði hann. Unnum Tyrkland síðast Jón Axel fékk dæmdar á sig tvær mikilvægar villur undir blálokin þegar Ísland var þremur stigum yfir. „Já, Balli [Baldur Þór Ragnarsson aðstoðarþjálfari] kallaði þetta. Maður hefur spilað körfubolta lengi þannig að maður er aðeins farinn að þekkja hvenær á að gera þetta,“ útskýrði hann. Ísland mætir Tyrklandi, Serbíu og Bosníu og Hersegóvínu í seinni umferð undankeppni HM. „Mér líst bara helvíti vel á það. Síðast þegar við spiluðum á móti Tyrklandi heima þá unnum við. Við erum vanir að spila á móti stórum þjóðum. Við viljum spila á móti þessum þjóðum og sýna þeim að við getum líka unnið þær,“ sagði Jón Axel Guðmundsson að lokum við RÚV.
Körfubolti Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Leik lokið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira