Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Eiður Þór Árnason skrifar 6. júlí 2026 23:59 Hin tveggja mánaða Saidal Altaher fær meðferð við vannæringu á barnaspítala í Port Sudan í apríl. Ap/Bernat Armangu Yfir 300 börn hafa farist eða særst í stríðinu í Súdan á síðustu sex mánuðum, flest vegna drónaárása. Þetta segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) en súdanski herinn og vígasveitirnar Rapid Support Forces (RSF) hafa barist í landinu frá því í apríl 2023. Átökin eru talin hafa kostað minnst 59 þúsund manns lífið.
Þar að auki hafa um 13 milljónir verið hrakin á flótta og borgarastyrjöldin valdið því að fólk býr við hungursneyð í mörgum landshlutum. Meira en 30 milljónir manna eru sögð þurfa á mannúðaraðstoð að halda. Óttast er að þjóðarmorð sé yfirvofandi. Stríðið stendur nú hæst í Kordofan-, Darfur- og Bláu Nílar-héruðunum, þar sem drónahernaður veldur sex af hverjum tíu andlátum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá UNICEF í dag en Ísland kallaði á dögunum eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Í dag samþykkti ráðið tillögu þar sem aukið ofbeldi RSF og bandamanna þeirra í og við el-Obeid í Súdan er fordæmt. Tillagan var samþykkt án atkvæðagreiðslu og hvetur einnig til aukins stuðnings við lönd sem hýsa flóttafólk frá Súdan og fordæmir „alls kyns utanaðkomandi íhlutun“ í stríðinu. Um leið og sett var á fót rannsókn á meintum mannréttindabrotum í Súdan. Hin átta ára Zeinab Mujhed særðist í sprengjuárás og sést hér á Al Nao-sjúkrahúsinu í Omdurman, í útjaðri Khartoum í Súdan í apríl.Ap/Bernat Armangue Sameinuðu þjóðirnar, Bandaríkin, Bretland og fleiri hafa lýst yfir áhyggjum af hugsanlegum voðaverkum þar sem RSF og herinn berjast um yfirráð yfir hernaðarlega mikilvægu borginni el-Obeid í Norður-Kordofan. AP-fréttaveitan greinir frá þessu. Drónaárásir og sprengjuárásir hafa beinst að borgaralegum innviðum, þar á meðal skólum, mörkuðum, eldsneytis- og vatnsstöðvum, sem hefur sett yfir 500 þúsund manns í hættu. Almennir borgarar á sumum svæðum hafa búið við aðstæður sem hefur verið líkt við umsátur í meira en ár. Hryllingurinn megi ekki endurtaka sig „Börn eru föst í linnulausri hringrás ofbeldis, landflótta og skorts,“ sagði Sheldon Yett, fulltrúi UNICEF í Súdan. Reuters-fréttaveitan segir að nú sé varað við hættunni á stórfelldum grimmdarverkum þar sem RSF-sveitirnar hafi safnast saman í kringum eina af stærstu borgum Súdan. Umsátrið minni á yfirtökuna á al-Fashir í Norður-Darfúr á síðasta ári. „Sá hryllingur má ekki endurtaka sig,“ sagði Eleanor Sanders, sendiherra Bretlands í mannréttindamálum, fyrir framan mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna. Aðrir á borð við Zaheer Laher, sendiherra Suður-Afríku, studdu tillöguna og töluðu um „rauða viðvörun þar sem RSF-sveitirnar eru að byggja á sömu þjóðarmorðshandbók og notuð var í al-Fashir.“ Kona og barn á flótta frá el-Fasher, höfuðborg Norður-Darfúr, eða öðrum átakasvæðum ganga um El-Afadh-flóttamannabúðirnar í Al Dabbah í Súdan.AP/Marwan Ali Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna varaði við því á föstudag að „stórslys“ væri í uppsiglingu í kringum al-Obeid og að skrifstofa hans hefði skrásett röð aftaka án dóms og laga, mannrán, pyntingar og kynferðisofbeldi á svæðinu í kring. RSF hefur neitað slíkum ásökunum um mannréttindabrot þau þrjú ár sem borgarastyrjöldin hefur staðið yfir og sagt frásagnirnar vera uppspuna frá óvinum þeirra og borið á þá gagnásakanir. Rætt við yfirmann RSF Tom Fletcher, æðsti yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, ræddi vaxandi átök í símtali við Mohamed Hamdan Dagalo, yfirmann RSF, að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna. Sagt er að Fletcher hafi lagt áherslu á nauðsyn þess að tryggja mannúðarstarfsfólki öruggan aðgang að svæðinu og örugga för almennra borgara. Þá lýsti hann yfir áhyggjum af drónaárásum sem hafi áhrif á almenna borgara og þá innviði sem þeir treysti á. Tillaga mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna var samþykkt einhljóða þótt Kína hafi lýst sig ósammála ákvörðuninni og sagt að það styddi ekki rannsóknir sem beindust að einstökum löndum án stuðnings þarlendra stjórnvalda. Aðrir sögðu að tillagan hefði átt að ganga lengra í að nafngreina aðila sem þeir segja að kyndi undir átökin með því að útvega vopn, þar á meðal dróna, í stað þess aðeins að vísa til „utanaðkomandi stuðnings“. Segja Sameinuðu arabísku furstadæmin styðja RSF Fram kemur í frétt Reuters að afrísku mannréttindasamtökin DefendDefenders telji tillöguna sem samþykkt var í mannréttindaráðinu ekki ganga nógu langt og vísa til þess sem þau kalla viðvarandi stuðning Sameinuðu arabísku furstadæmanna við RSF. Ríkisstjórn Súdan sem er hliðholl stjórnarhernum hefur einnig sakað Sameinuðu arabísku furstadæmin um að vopna sveitirnar sem hafa barist við súdanska herinn í borgarastyrjöldinni. Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa ítrekað neitað slíkum ásökunum, þótt sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna og bandarískir þingmenn hafi talið sannanir fyrir hernaðarstuðningi Sameinuðu arabísku furstadæmanna trúverðugar. Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt stríðandi fylkingar „til að vernda almenna borgara og borgaralega innviði, leyfa og greiða fyrir öruggum, skjótum og óhindruðum aðgangi mannúðaraðstoðar og gera allar mögulegar ráðstafanir til að vernda börn fyrir skaða.“ Fjöldi farist í námum Fram kemur í frétt AP að í aðskildu máli hafi minnst 15 óformlegir námuverkamenn látist í dag þegar yfirgefin gullnáma hrundi að hluta í Wadi Halfa-héraði nálægt landamærum Súdan og Egyptalands, að sögn yfirvalda. Annar námuverkamaður slasaðist þegar Mohamed Taqfiq-náman hrundi, að sögn súdanska námufyrirtækisins Sudanese Mineral Resources Co. Fyrirtækið sagði að námuverkamennirnir hefðu hafið uppgröft á ný á svæðinu, þrátt fyrir að yfirvöld hefðu áður lokað því af öryggisástæðum. Súdan er einn helsti gullframleiðandi Afríku. Landið framleiddi 70 tonn af gulli á síðasta ári, samanborið við 64 tonn árið 2024, samkvæmt opinberum tölum. Meirihluti gulls í landinu er sagður koma úr námugreftri sem er smár í sniðum þar sem öryggisstaðlar eru að mestu virtir að vettugi. Námuhrun eru ekki óalgeng í landinu en í maí létust að minnsta kosti sjö námuverkamenn í námuslysi í Rauðahafshéraði. Þrettán aðrir létust í öðru hruni í Suður-Kordofan-héraði í janúar.
Súdan Sameinuðu þjóðirnar Sameinuðu arabísku furstadæmin Tengdar fréttir Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan Ísland var meðal þeirra ríkja sem kölluðu eftir brýnni umræðu (e. urgent dabate) um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. 3. júlí 2026 15:57 „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Stríðið í Súdan hefur leitt til verstu mannúðar- og flóttamannakrísu í heiminum fyrir konur og stúlkur, samkvæmt nýlegri skýrslum UN Women. Átökin á milli stjórnarhers Súdans og RSF-uppreisnarhersins hafa nú staðið yfir í þrjú ár og ná til fjölda héraða, þar með talið Darfúr og Kordófan. Svæðisstjóri UN Women í Súdan, Salvator Nkurunziza, segir nóg komið og að stríðinu verði að ljúka. 21. júní 2026 20:00 Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sjá meira
Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan Ísland var meðal þeirra ríkja sem kölluðu eftir brýnni umræðu (e. urgent dabate) um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. 3. júlí 2026 15:57
„Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Stríðið í Súdan hefur leitt til verstu mannúðar- og flóttamannakrísu í heiminum fyrir konur og stúlkur, samkvæmt nýlegri skýrslum UN Women. Átökin á milli stjórnarhers Súdans og RSF-uppreisnarhersins hafa nú staðið yfir í þrjú ár og ná til fjölda héraða, þar með talið Darfúr og Kordófan. Svæðisstjóri UN Women í Súdan, Salvator Nkurunziza, segir nóg komið og að stríðinu verði að ljúka. 21. júní 2026 20:00