Súdan

Súdan

Höfuðborg: Kartúm. Mannfjöldi: 51,7 milljónir (2025). Flatarmál: 1.886.000 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stór­slysi

Yfir 300 börn hafa farist eða særst í stríðinu í Súdan á síðustu sex mánuðum, flest vegna drónaárása. Þetta segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) en súdanski herinn og vígasveitirnar Rapid Support Forces (RSF) hafa barist í landinu frá því í apríl 2023. Átökin eru talin hafa kostað minnst 59 þúsund manns lífið.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Konur eru svangari, fá­tækari og ör­væntingar­fyllri en nokkru sinni fyrr“

Stríðið í Súdan hefur leitt til verstu mannúðar- og flóttamannakrísu í heiminum fyrir konur og stúlkur, samkvæmt nýlegri skýrslum UN Women. Átökin á milli stjórnarhers Súdans og RSF-uppreisnarhersins hafa nú staðið yfir í þrjú ár og ná til fjölda héraða, þar með talið Darfúr og Kordófan. Svæðisstjóri UN Women í Súdan, Salvator Nkurunziza, segir nóg komið og að stríðinu verði að ljúka. 

Erlent
Fréttamynd

Bjóða Rússum flota­stöð við Rauða­hafið

Herforingjastjórn Súdan sendi í október tilboð til ráðamanna í Rússlandi og bauð þeim að koma mögulega upp fyrstu rússnesku flotastöðinni við Rauðahaf. Í staðinn fyrir flotastöð og námusamninga vill ríkisstjórnin loftvarnarkerfi og vopn á góðu verði en illa hefur gengið í átökunum við RSF.

Erlent
Fréttamynd

Ódæðin í Súdan mögu­lega glæpir gegn mann­kyninu

Saksóknarar við Alþjóðasakamáladómstólinn (ICC) segja ódæði vígamanna hóps sem kallast Rapid Support Forces eða (RSF) í borginni El Fasher í Súdan mögulega vera stríðsglæpi eða glæpi gegn mannkyni. Unnið sé að því að varðveita sönnunargögn, eins og myndbönd sem vígamennirnir birtu sjálfir, og ræða við vitni.

Erlent
Fréttamynd

Fursta­dæmin dæla vopnum og kín­verskum drónum til Súdan

Leyniþjónustur Bandaríkjanna og embættismenn í Evrópu, Líbíu og Egyptalandi segja að ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafi aukið hergagnasendingar til vígamanna Rapid support forces (RSF) í Súdan á þessu ári. Kínverskir drónar hafa verið sendir til vígamannanna, auk stórskotaliðsvopna, farartækja, vélbyssa og skotfæra, svo eitthvað sé nefnt.

Erlent
Fréttamynd

Ó­dæði eftir fall El Fasher: Blóðið sýni­legt úr geimnum

Fregnir hafa borist af umfangsmiklum ódæðum eftir að borgin El Fasher í Súdan féll í hendur vígamanna Rapid Support Forces eða RSF. Vígamenn hafa birt myndbönd af sér skjóta óvopnað fólk í massavís og elta uppi, ræna og myrða fólk sem reyndi að flýja borgina við fall hennar. Þá virðast gervihnattamyndir sýna blóðbað í borginni sjálfri og eru blóðpollar sýnilegir á þeim.

Erlent
Fréttamynd

Óttast blóð­bað við fall síðasta vígis stjórnar­hersins í Darfur

Leiðtogar uppreisnarsveita Rapid Support Forces (RSF) í Súdan segjast hafa handsamað höfuðstöðvar stjórnarhersins í borginni el-Fasher. RSF-liðar hafa setið um borgina um langt skeið en hún er sú stærsta í Darfur-héraði sem stjórnin heldur enn. Óttast er að blóðbað muni fylgja á hæla falls borgarinnar, þar sem að minnsta kosti 250 þúsund manns eru talin búa.

Erlent
Fréttamynd

Ná ekki að leika árangur Wagner eftir

Rúmum tveimur árum eftir dauða Jevgenís Prígósjín, rússnesks auðjöfurs og eiganda málaliðahópsins Wagner, hefur staða Rússa í Afríku versnað töluvert. Nýi málaliðahópur Rússa, Afríkudeildin, sem rekinn er af varnarmálaráðuneytinu hefur ekki skilað sama árangri og Wagner gerði á sínum tíma, hvorki með tilliti til hagnaðar eða áhrifa.

Erlent
Fréttamynd

Hörmungarnar sem heimurinn hunsar

Á meðan augu heimsins beinast að versnandi átökum og hörmungum í Mið-Austurlöndum og Rússum hnykkla vöðvana í Evrópu, þjáist almenningur í Súdan og nágrannaríkjum þess í alvarlegustu mannúðarhörmungum samtímans.

Skoðun
Fréttamynd

Blóð­bað í Súdan: Framtíðarannáll?

El Fasher. Líklega þekkja ekki margir lesendur nafnið á höfuðstað héraðsins Darfur í Vestur-Súdan. El Fasher er meira en milljón manna borg, með fjölda flóttamanna að auki, sem nú er í hernaðarumsátri sem staðið hefur í 500 daga. Borgina hafa umkringt svokallaðar hraðsveitir, Rapid Support Forces (RSF), sem eru undir stjórn stríðsherra sem reis til valda í skjóli fyrrum einræðisherra.

Skoðun
Fréttamynd

Grönduðu flug­vél frá fursta­dæmunum og felldu fjöru­tíu mála­liða

Súdanski herinn gerði á dögunum loftárás á flugvöll í Darfurhéraði sem beindist sérstaklega að herflugvél sem talið er að hafi verið í eigu herafla Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Flugvélinni var grandað og með henni fórust að minnsta kosti fjörutíu málaliðar frá Kólumbíu, sem furstadæmin eru sögð hafa ráðið til að styðja uppreisnarmenn í Súdan.

Erlent
Fréttamynd

Súdanar flýja undan sveitum Haftars

Forsvarsmenn hers Súdan segja hermenn hafa hörfað frá landamærum ríkisins við Egyptaland og Líbíu, eftir að vígahópar á vegum Khalifa Haftar í Líbíu gerðu árásir yfir landamærin, samhliða sveitum Rapid support forces, eða RSF, sem barist hafa gegn hernum í á þriðja ár.

Erlent
Fréttamynd

Á­hyggju­efni ef raddir kvenna hætti að heyrast í þróunar­að­stoð

Ný könnun leiðir í ljós að nær helmingur kvennasamtaka sem styðja konur í neyð gæti neyðst til að hætta starfsemi innan sex mánaða. Ástæðan er alþjóðlegur niðurskurður í fjárstuðningi til mannúðaraðstoðar. Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, segir stöðuna grafalvarlega.

Innlent
Fréttamynd

Hug­leiðingar á páskum

Stríðið í Úkraínu er tapað eins og önnur stríð sem háð hafa verið með vopnum, sama hvernig það fer. Hvorki lönd né þjóðir verða unnin með hernaði, ekki fremur að friðsamlegu og varanlega öruggu þjóðskipulagi verði komið á með vopnavaldi.

Skoðun
Fréttamynd

Hafa nú lýst yfir stofnun ríkis­stjórnar í landinu

Uppreisnarmenn í Afríkuríkinu Súdan hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu sem þeir segja koma í stað þeirrar sem fyrir er, en nú eru tvö ár liðin síðan borgarastríð braust út í Súdan með þeim afleiðingum að þar er nú talin mesta mannúðarkrísan á jörðinni.

Erlent
Fréttamynd

For­seta­höllin í höndum hersins eftir tveggja ára á­tök

Stjórnarher Súdan hefur náð tökum á forsetahöllinni í Khartoum, höfuðborg landsins. Um er að ræða mjög táknrænan árangur eftir rúmlega tveggja ára átök hersins við sveitir Rapid support forces, eða RSF. Hörð átök hafa átt sér stað í borginni að undanförnu og hefur hernum vaxið ásmegin gegn RSF.

Erlent
Fréttamynd

Stefna á víð­tækar ferðatakmarkanir

Stjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, stefnir á að gefa út víðtækar ferðatakmarkanir fyrir ríkisborgara 43 landa. Löndunum er skipt í þrjú stig en ríkisborgum ellefu landa verður alfarið bannað að ferðast til Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Her Súdan í sókn gegn RSF og her­menn sakaðir um ó­dæði

Yfirmaður hers Súdan hefur sett á laggirnar rannsókn vegna ásakana um að hermenn hafi framið umfangsmikil ódæði í Wad Madani, höfuðborg Gezira-héraðs, eftir að hún féll í hendur hersins á dögunum. Þar áður hafði borgin lengi verið í höndum sveita Rapid Support Forces eða RSF.

Erlent
Fréttamynd

Vígahópum vex ás­megin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu

Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta.

Erlent
Fréttamynd

FO: Hvernig getur þú skipt sköpum fyrir konur í Súdan?

Það herja því miður stríð víða um heim. Þau fá mismikla athygli fjölmiðla og annarra sem bera okkur fréttir. Stríð eru alltaf hræðileg en hryllingurinn virðist smám saman dofna í huga okkar, þetta er allt svo langt frá okkur og ekki á fólk leggjandi að horfa upp á eymdina svo dögum, vikum og mánuðum skiptir.

Skoðun
Fréttamynd

Hið gleymda hel­víti á jörðu

Óhætt er að segja að hryllilegt neyðarástand ríki í Súdan. Í rúmt ár hafa herforingjar barist um völdin í landinu með skelfilegum afleiðingum. Morgunblaðið hefur ítrekað vakið athygli á stöðunni og í liðinni viku var ítarleg umfjöllun um ástandið í Ríkisútvarpinu.

Skoðun