Erlent

Farage segir af sér þing­mennsku eftir upp­ljóstranir um gjafir

Kjartan Kjartansson skrifar
Nigel Farage gagnrýndi fjölmiðla og stjórnvöld í ávarpi þar sem hann kynnti afsögn sína sem þingmaður í dag.
Nigel Farage gagnrýndi fjölmiðla og stjórnvöld í ávarpi þar sem hann kynnti afsögn sína sem þingmaður í dag. AP/Garth Fuller/PA

Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins, ætlar að segja af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir sem hann þáði frá auðkýfingum. Hann ætlar að bjóða sig aftur fram til þingsætisins.

Mikið hefur verið fjallað um gjafir sem Farage hefur þegið frá auðkýfingum, nú síðast frá dæmdum sakamanni, áður en hann var kjörinn á breska þingið árið 2024. Breskir þingmenn þurfa að gefa upp framlög allt að ári áður en þeir taka sæti nema um einkagjafir sé að ræða.

Siðanefnd breska þingsins var þegar að rannsaka fé sem Farage þáði frá rafmyntafjárfesti til þess að greiða fyrir öryggisgæslu. Sunday Times sagði svo frá því um helgina að annar rafmyntamógúll hefði gefið Farage gjafir sem hann gaf ekki upp. Sá hlaut fjársvikadóm í Bandaríkjunum og sat inni vegna þess. Í kjölfarið hefur komið í ljós að hann virðist hafa unnið fyrir Umbótaflokk Farage.

Í löngu sjónvarpsávarpi um framtíð hans í stjórnmálum sagðist Farage ætla að segja af sér þingmennsku. Hann ætlaði hins vegar að bjóða sig fram í aukakosningum um þingsætið í Clacton-kjördæmi enda hefði hann ekkert gert af sér.

Hélt Farage því fram að margt í nýjustu umfjöllun Sunday Times væri rangt eða málinu óviðkomandi. Þrátt fyrir það hefði siðanefnd þingsins hafið rannsókn sem hann lýsti sem „pólitísku verkfæri“. Sakaði hann yfirvöld um að leka persónuupplýsingum í fjölmiðla.

„Ráðandi öfl hafa ákveðið að þau geti ekki unnið okkur í sanngjörnum slag og að nota bellibrögð í staðinn,“ sagði Farage.

Eignaði sér heiður af Brexit og falli Starmer

Farage fór um víðan völl í ávarpinu. Hann hefði sætt ofsóknum og áreiti og dóttir hans sömuleiðis. Eignaði hann sér heiður af Brexit og að hafa valdið falli Keirs Starmer sem forsætisráðherra.

Um gjöfina sem hann fékk frá dæmda sakamanninum sagði Farage að hún hefði verið án allra skilyrða og að hann hefði getað gert hvað sem hann vildi með féð. Líkti hann gjöfinni við happdrættisvinning. Að eigin mati hefði hann farið eftir reglum breska þingsins samkvæmt þeim lögfræðilegum ráðleggingum sem hann hefði fengið.

„Viljum við leiðtoga sem kunna að þéna?“ spurði Farage í ávarpinu og gagnrýndi að breskir ráðherra kynnu ekkert með peninga að fara. Það væri ekki glæpur fyrir stjórnmálamenn að græða peninga.

Farage hlaut rúm 46 prósent atkvæða í Clacton í kosningunum árið 2024, hátt í tuttugu prósentustigum meira en frambjóðandi Íhaldsflokksins.

Handtekinn í kringum landsfund repúblikana 2016

Uppljóstranir Sunday Times um helgina vörðuðu gjafir frá George Cottrell, rafmyntamógúli, sem var dæmdur fyrir fjársvik í Bandaríkjunum árið 2017. The Guardian segir að Cottrell hafi verið handtekinn á landsþingi Repúblikanaflokksins árið 2016 þar sem hann var með hópi breskra Brexit-sinna, þar á meðal Farage.

Cottrell gaf út bók fyrr á þessu ári um hvernig ætti að þvætta fé sem var titluð sem leiðbeiningar fyrir yfirvöld.

Farage og Umbótaflokkur hans hafa haldið því fram að gjafirnar sem Farage þáði frá Cottrell hefðu verið ótengdar stjórnmálastarfi hans og þannig undanþegnar reglum þingsins. Breskir fjölmiðlar hafa vefengt það enda hafi Cottrell verið með nafnspjald frá Umbótaflokknum sem á var letrað tölvupóstfang Farage sjálfs.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×