Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Árni Sæberg skrifar 9. júlí 2026 11:36 Fannar Jónasson varð landsþekktur þegar hann leiddi Grindvíkinga í gegnum mikla óvissutíma vegna jarðhræringa á Reykjanesi. vísir/ívar Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á laggirnar sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi til að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta rekstur bæjarins. Fannar Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur, leiðir teymið.
Í tilkynningu þess efnis á vef Reykjanesbæjar segir að markmið teymisins sé að stuðla að markvissri hagræðingu, bæta þjónustu sveitarfélagsins og tryggja að skattfé íbúa nýtist sem best. Verkefnið sé liður í þeirri stefnu nýs meirihluta að fara í heildstæða endurskoðun á rekstri sveitarfélagsins og innleiða umbætur sem skila raunverulegum árangri. Sömdu við einn reynslumesta sveitarstjórnarmann landsins „Til að leiða þetta mikilvæga verkefni hefur Reykjanesbær gert verktakasamning við Fannar Jónasson, einn af reynslumeiri sveitarstjórnarmönnum landsins. Fannar hefur áratugalanga reynslu af stjórnun sveitarfélaga og mun gegna lykilhlutverki við framkvæmd umbóta- og hagræðingarverkefna sveitarfélagsins.“ Meðal verkefna Fannars verði að stýra vinnu við svokallaða núllgrunnsáætlun, fara yfir fyrirliggjandi stjórnsýslu- og fjárhagsúttektir, leggja mat á frekari greiningar sem kunni að vera nauðsynlegar og leiða eftirfylgni umbótaverkefna. Þá muni hann einnig veita kjörnum fulltrúum og stjórnendum ráðgjöf um framkvæmd verkefnanna og styðja sveitarfélagið í samskiptum við stjórnvöld og aðra samstarfsaðila. Fjöldi starfsmanna og stjórnenda tekur þátt Umbóta- og hagræðingarteymið verði skipað starfsfólki og stjórnendum með ólíka sérþekkingu sem vinni saman að því að greina tækifæri til einföldunar, bæta verkferla og hraða innleiðingu breytinga. Fannar Jónasson muni leiða umbóta- og hagræðingarverkefni sveitarfélagsins í nánu samstarfi við bæjarstjóra. Gunnlaugur Kárason, formaður bæjarráðs, muni samræma samstarf við formenn ráða og nefnda og stuðla að því að hugmyndir um aukna skilvirkni og hagræðingu skili sér þvert á alla stjórnsýslu sveitarfélagsins. Andri Örn Víðisson muni leiða verkefni sem snúa að þróun stjórnsýslunnar, stafrænni umbreytingu og innleiðingu stefnumála sveitarfélagsins. Hermann Nökkvi Gunnarsson, aðstoðarmaður bæjarstjóra, verði teyminu til aðstoðar og jafnframt muni fulltrúar fjármála- og mannauðssviðs taka þátt í starfi þess. Með þessu sé tryggt að fagþekking frá lykilsviðum sveitarfélagsins komi að verkefnunum frá upphafi og að umbótaverkefni sveitarfélagsins njóti öflugrar samhæfingar og eftirfylgni. Ætli að fara vel með skattfé „Við höfum þegar sýnt að við ætlum að fara vel með skattfé íbúa. Á fyrstu vikunum fækkuðum við pólitískum nefndum og ráðum og spöruðum sveitarfélaginu hátt í 10 milljónir króna á ári. Við höfum jafnframt lækkað laun bæjarstjóra sem skilar 4–5 milljóna króna sparnaði á ársgrundvelli og laun aðstoðarmanns bæjarstjóra eru um fjórum milljónum króna lægri á ári, að meðtöldum launatengdum gjöldum, en greidd voru fyrir aðstoðarmann bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili. Það voru fyrstu skrefin, en nú tekur við næsti áfangi þar sem við ætlum að halda áfram að bæta rekstur sveitarfélagsins og tryggja að hver króna nýtist sem best í grunnþjónustu og innviði,“ er haft eftir Vilhjálmi Árnasyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Umbóta- og hagræðingarteymið sé tímabundið verkefnateymi sem hafi það hlutverk að leiða áfram þessa vinnu, hraða nauðsynlegum breytingum, auka skilvirkni og skapa sterkari rekstrargrundvöll fyrir Reykjanesbæ. Markmiðið sé að einfalda stjórnsýslu, stytta boðleiðir, auka skilvirkni og nýta skattfé betur. Með markvissri eftirfylgni, faglegri verkefnastjórn og skýrri forgangsröðun ætli Reykjanesbær að byggja upp öflugra sveitarfélag þar sem fjármunum íbúa sé ráðstafað af ábyrgð og þjónustan verði betri.
Reykjanesbær Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Rekstur hins opinbera Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Reglur um dvalarleyfi þrengdar og filippseyskar au-pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Sjá meira