Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Freyja Þórisdóttir skrifar 9. júlí 2026 13:48 Allir samstarfsmenn Betazzo eru harmi slegnir en hann var sagður brosmildur og yndislegur. Instagram/Leandro Bertazzo Flugkennarinn Leandro Andrés Bertazzo, 42 ára, fannst látinn eftir að hafa stokkið út úr dyrum flugvélar og með því skilið nemanda sem hann var að kenna eina eftir svo hún varð að lenda vélinni sjálf. Atvikið átti sér stað yfir bænum Toledo í Argentínu á laugardag, samkvæmt yfirlýsingu frá ríkissaksóknara landsins sem birt var á þriðjudag.
Frá þessu er greint í fjölda staðarmiðla sem og í umfjöllun bandaríska fréttamiðilins CNN en þar kemur einnig fram að nemandinn hafi verið hin 22 ára gamla Rosario. Nemandinn sagði Bertazzo hafa sagt við sig: „Þú veist hvað þú átt að gera, haltu áfram,“ áður en hann tók af sér heyrnartólin og öryggisbeltið, opnaði dyrnar og stökk út úr vélinni, er fram kemur í frétt CNN. Mannshugurinn svo flókinn Eduardo Álvarez, skólastjóri flugskólans Flying Parrot Córdoba þar sem Bertazzo starfaði, hefur tjáð sig um málið og er meðal annars haft eftir honum að ekkert hefði bent til þess að flugmaðurinn hygðist stökkva úr vélinni. Bertazzo hafði farið í flug með öðrum nemanda fyrr um daginn staðfesti hann einnig. Flugvélin sem nemandinn lenti ein og óstudd var af gerðinni Cessna 150 en hún er tveggja sæta.Getty „Hann tók þessa hörmulegu ákvörðun um borð í flugvél með aðra manneskju sér við hlið,“ er haft eftir honum í frétt CNN. Bertazzo hafi verið yndisleg manneskja og að allir starfsmenn skólans séu furðu lostnir á því að þetta hafi skeð. „Það er ómögulegt að hugsa um það eða skilja en mannshugurinn er svo flókinn.“ Að opna dyr flugvélar á flugi er afar erfitt, útskýrði Álvarez, sem líkti því við að reyna að opna dyr bíls á 200 kílómetra hraða á klukkustund en nemandanum tókst að lenda vélinni heilu og höldnu þrátt fyrir að vera, líkt og gefur að skilja, í algjöru áfalli. Bertazzo var mjög reyndur og hafði einnig starfað sem flugkennari í Síle en rannsókn stendur yfir vegna málsins og er verið að skoða þá atburði sem leiddu til andlátsins.
Flug Argentína Síle Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira