Lokuðu flugbraut vegna dróna Eiður Þór Árnason skrifar 12. júlí 2026 23:56 Reykjavíkurflugvöllur í þoku. Vísir/Vilhelm Flugbraut á Reykjavíkurflugvelli var lokað um tíma í dag og óskað eftir aðstoð lögreglu þegar dróna var flogið nálægt vellinum í leyfisleysi. Hann sást utan flugvallarsvæðis og var flugbrautin opnuð aftur skömmu síðar.
Viðar Jökull Björnsson, flugvallarstjóri á Reykjavíkurflugvelli, segir að farþegavél Icelandair hafi verið yfir miðbæ Reykjavíkur á leið til lendingar þegar flugmaður tilkynnir að sést hafi til dróna nálægt vélinni og hann líklega í aðflugsleið inn á flugbraut. „Þeir voru ekkert í þeirri flugstefnu heldur sáu hann bara og tilkynna þetta til flugturnsins og það er þá tilkynnt áfram til lögreglu. Flugumferðarstjórar á Reykjavíkurflugvelli lokuðu flugbrautinni og þessari aðflugsleið og brottflugsleið, tilkynna til lögreglu og lögreglan fór svo á staðinn með einhver tæki og tól sem þeir eiga til þess að nema þetta eða leita að stjórnendum dróna. Ég veit ekki svo sem hvað kom út úr þeirri leit en skömmu síðar var brautin opnuð aftur,“ segir Viðar. Fjölgun í umsóknum Dróninn var utan flugvallarsvæðis þegar tilkynnt var um hann og ekki sást til hans aftur eftir þetta. Flugið var óheimilt þar sem stjórnandi drónans hafði ekki sótt um heimild fyrir fluginu á heimasíðu Isavia, að sögn Viðars. Mikil fjölgun hafi verið í umsóknum um slíkar heimildir til drónaflugs við flugvöllinn samhliða aukinni drónaeign landsmanna. Viðar veit ekki til þess að það hafi sömuleiðis verið vöxtur í óleyfilegu flugi slíkra tækja.
Flug Reykjavík Isavia Reykjavíkurflugvöllur Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Innlent Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Fleiri fréttir Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Sjá meira