Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. júlí 2026 08:35 Abir Al-Sahlani er þingkona sænska Miðflokksins. Hún fæddist í Írak en flúði til Svíþjóðar fimmtán ára gömul. Þingmenn tveggja þjóðernisíhaldsflokka á Evrópuþinginu vildu að hún færi „heim“. Vísir/Getty Sænskur þingmaður Evrópusambandsins hefur lagt fram kæru til lögreglu þar sem hún sakar danskan kollega sinn um hatursorðræður byggðar á kynþáttafordómum. Þingmaðurinn varð fyrir áreiti á samfélagsmiðlum fyrir að fordæma fagnaðarlæti á Evrópuþinginu.
Abir Al-Sahlani, sænskur þingmaður Evrópusambandsins sem fæddist í Írak, kærði Kristoffer Storm, danskan þingmann Evrópusambandsins, sem skrifaði í færslu á samfélagsmiðlum að hún ætti að fara aftur til síns heima. Það var í síðasta mánuði þegar þingmenn Evrópusambandsins greiddu atkvæði um frumvarp sem miðaði að því að fjölga brottvísunum innan ESB. Í kjölfar atkvæðagreiðslunnar hófu nokkrir hægrisinnaðir þingmenn að hrópa „sendið þau til baka“. Al-Sahlani ávarpaði þingið í kjölfarið og sakaði „fasista öfgahægrisins“ um að hafa náð „nýjum lægðum“. Hún sagðist aldrei hafa fundið fyrir jafn miklu óöryggi á þinginu. „Hróp öfgahægrimanna beindust ekki gegn pólitískum andstæðingi, þau voru „sendið þau til baka“. Þau snerust um venjulegt fólk sem hafði ekki framið neinn annan „glæp“ en að leita að betra lífi í Evrópu,“ sagði hún. Ávarpið fór í dreifingu á samfélagsmiðlum og rituðu tveir þingmenn athugasemdir við umfjöllunina. „Gráttu meira,“ skrifaði Sebastian Tynkkynen, finnskur þingmaður Evrópusambandsins, og sagði Storm, líkt og kom fram hér að ofan, að „hún ætti að fara heim“. Al-Sahlani lagði fram kæruna á miðvikudag, einungis gegn Storm þar sem sænska lögreglan var óviss um hvernig ætti að meðhöndla færslu Tynkkynen. Tynkkeynen hefur áður vakið athygli vegna ætlaðs kynþáttaníðs og hefur hann verið sakfelldur fyrir hatursorðræður í garð hælisleitenda og útlendinga. Báðir menn hafa neitað ásökunum á hendur sér. Í tölvupósti sem The Guardian hefur undir höndum segir Storm að ummæli hans „hafi hvorki verið ætluð sem rasísk né sé hægt að túlka þau með sanngjörnum hætti sem rasísk.“ Í viðtali við The Guardian sagði Al-Sahlani að hún væri ekki enn alveg viss um hvað henni ætti að finnast um málið. Hún finni til sorgar vegna evrópsks lýðræðis. „Svona í alvöru, er þetta það sem stjórnmálamenn okkar hafa upp á að bjóða? En ég er líka vonsvikin því, í alvöru, strákar. Ég er samstarfsmaður ykkar.“
Evrópusambandið Svíþjóð Danmörk Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira