Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Jón Þór Stefánsson skrifar 13. júlí 2026 11:36 Jón Rúnar var formaður knattspyrnudeildar FH á árunum 2005 til 2019. Vísir/Arnar Hafnarfjarðarbær hefur verið sýknaður af kröfum Jóns Rúnars Halldórssonar, fyrrverandi formanns knattspyrnudeildar FH, í Héraðsdómi Reykjaness. Hann hafði farið fram á að bærinn myndi greiða sér 2,5 milljónir króna fyrir að afhenda fjölmiðlum gögn.
Jón Rúnar segir dóminn rangan, en hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun. Uppruna málsins má rekja til knatthússins Skessunnar sem var opnað í október árið 2019 á níutíu ára afmæli FH. Framkvæmdin á byggingu hússins fór langt fram úr áætlun og vegna þungarar fjárhagsstöðu íþróttafélagsins fór það á leit bæjarins um að það myndi kaupa knatthúsið af sér. Bærinn fékk ráðgjafarfyrirtækið Deloitte til að fara í saumana á framkvæmdinni, og fjölmiðlar fjölluðu síðan um þá skýrslu sem fyrirtækið skilaði af sér. Sjá nánar: Tugir milljóna króna beint til formanns FH Jón Rúnar sagði að ummæli í skýrslu Deloitte hafi verið röng, um að félag í eigu hans, Best Hús ehf., hafi fengið um 393 milljónir króna greiddar frá FH í tengslum við byggingu Skessunnar, á meðan hann var í sjálfboðastarfi hjá félaginu, þrátt fyrir að einungis hluti þeirra greiðslna hafi verið tilgreindur í ársreikningum FH. Þá vildi Jón Rúnar meina að Hafnarfjarðarbær hefði ekki átt að veita fjölmiðlum skýrsluna. En bærinn sagði að sér hafi verið skylt að gera svo, enda hafi hún fjallað um meðferð opinbers fjár. Í dómnum er bent á að Hafnarfjarðarbær hafi ekki verið höfundur skýrslunnar né þeirra frétta sem skrifaðar voru um málið, og því geti bærinn ekki verið ábyrgur fyrir staðhæfingum sem í þeim fundust, líkt og varðandi meintar ærumeiðandi aðdróttanir. Jafnframt er það mat dómsins að rétt hafi verið hjá bænum að afhenda fjölmiðlum skýrsluna. Hagsmunir almennings fyrir að fá að sjá hana hafi verið ríkari en hagsmunir Jóns. Raunar, segir í dómnum, hefði Jón Rúnar mátt vera undirbúinn fyrir það að upplýsingar um félag hans tengt þessari framkvæmd yrðu gerðar opinberar. Þó, féllst héraðsdómur á það með Jóni Rúnari að það hefði samrýmst góðri stjórnsýsluframkvæmd að óska eftir afstöðu hans eða félags hans um afhendingu skýrslunnar. Hins vegar var aðalstjórn FH kunnugt um beiðni fjölmiðla og kom félagið mótmælum sínum á framfæri. Einnig er bent á að Hafnarfjarðarbær hafi leitað sér lögfræðiálits um álitaefnið fyrir afhendinguna, og því ljóst að bærinn hafi tekið ákvörðun að vel ígrunduðu máli. Hálfkveðin vísa fyrir fjölmiðla að botna „Þetta er röng niðurstaða,“ segir Jón Rúnar í samtali við Vísi. „Ég hef að sjálfsögðu sömu rök fyrir því og ráku mig af stað. Síðan er verið að meta það hvað framhaldið verður.“ Jón Rúnar hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann muni áfrýja dómnum eða ekki, en segir að hann yrði þó ekki hissa ef hann myndi gera það. Hann tekur fram að einstaklingar standi verr í málum gegn opinberum aðilum. Það kosti hann stórfé að standa í máli sem þessu, en hið opinbera eigi nægan pening til þess, pening sem meðal annars hefur fengist úr hans vasa. Meðal þess sem Jón Rúnar gagnrýnir er að umrædd skýrsla, sem hafi verið full af fyrirvörum, hafi verið send til fjölmiðla. „Þarna er verið að leggja blessun sína yfir það að opinber aðili sendi fjölmiðlum hálfkveðna vísu, fyrir fjölmiðla að botna, hver á sinn hátt. Það er algjörlega galið í mínum huga.“ Skilur ekki alltaf dómarann, eins og í fótbolta Líkt og áður segir varðaði niðurstaða dómsins að miklu leyti rétt almennings til upplýsinga um meðferð almannafés. „Dómurinn byggir verulega á því að þarna sé verið að fara með almannafé eða almannahagsmuni. Ég bara get ekki séð hvernig fólk fær það út. Því Hafnarfjarðarbær kaupir þrjár eignir af FH, greiðir fyrir það, og það er hin eiginlega meðferð á almannafé,“ segir Jón Rúnar. „Hvað gerir FH við peninginn? Það gerir upp við lánadrottna, bankann, sem var auðvitað aðal orsökinn fyrir því að þessi gjörningur átti sér stað, vegna þess að það var ekki hægt að borga bankanum. Er það þá meðferð á almannafé að borga bankanum? Síðan er afgangur, og FH nýtir það til að greiða þeim sem veittu þjónustu við byggingu Skessunnar, en um leið þurfti FH að taka lán til að klára sig af byggingunni, upp á nokkur hundruð milljónir, sem þeir ráðstöfuðu til þess að borga þjónustuaðilanum. Er það ráðstöfun á almannafé? Ég bara skil ekki svona niðurstöður,“ bætir hann við. „En það er eins og í fótboltaleik, maður skilur ekki alltaf niðurstöðu dómarans. “
FH Hafnarfjörður Úttekt á byggingu Skessunnar í Hafnarfirði Dómsmál Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Sjá meira