Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 13. júlí 2026 14:40 Pablo Quirno utanríkisráðherra stakk niður penna og Messi og félagar sungu um Falklandseyjar í aðdraganda stórleiksins á miðvikudaginn. Vísir/Samsett Á miðvikudagskvöldið mætast England og Argentína í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en Pablo Quirno utanríkisráðherra Argentínu stakk niður penna við tilefnið og minnti á að deilunni um Falklandseyjar er hvergi nærri lokið af þeirra hálfu.
Á laugardaginn, þegar ljóst varð að Englendingar myndu mæta Argentínu í undanúrslitunum, birtist löng grein eftir Pablo Quirno utanríkisráðherra Argentínu í La Nación einum mest lesna miðli Argentínu. „Ólögmæt landtaka“ Í greininni segir atkvæðagreiðslu sem fram fór á eyjunum árið 2013 þar sem allir íbúar að þremur undanskildum greiddu atkvæði með því að vera áfram hluti af Bretlandi hafa farið ólöglega fram. Hann kallaði í leiðinni eftir því að Argentína og Bretland settust að samningaborðinu. „Tíminn gerir ólögmæta landtöku ekki að rétti né mun hann kljúfa landfræðilega einingu argentínska lýðveldisins,“ skrifar Quirno. RFA Sir Galahad brann til kaldra kola eftir loftárás Argentínumanna með þeim afleiðingum að tugir breskra sjóliða voru drepnir.Getty Mislukkuð innrás Argentínumanna árið 1982 sem hrundið var af Bretum og kostaði mörghundruð manns lífið telur Quirno ekki hafa markað endalok deilunnar og heldur ekki atkvæðagreiðslan árið 2013 sem var eins afgerandi og hægt er að hugsa sér. Argentínumenn gera enn tilkall áratugum eftir innrásina Pablo Quirno gerir grein fyrir tilkalli Argentínu til eyjanna með ýmissa vísana til alþjóðalaga og sögunnar. Tilkall Argentínu sé í raun andstaða við breska nýlendustefnu sem verður að teljast ansi langsótt í ljósi þess að íbúar eyjanna eru nær allir breskir og hafa verið það í langan tíma. „Falklandseyjar eru saga, land, haf, minning og örlög. Þær eru loforð kynslóða á milli. Þær eru rödd þjóðar sem kann að bíða án þess að gefast upp og kann að krefjast án þess að láta undan,“ skrifar Quirno og heitir því að Argentína láti ekki undan tilkalli sínu til eyjanna sama hvað. Fyrr á árinu fór að bera meira á þessum málflutningi argentínskra stjórnvalda vegna frétta um að ríkisstjórn Trumps hefði rætt um að breyta stefnu Bandaríkjanna varðandi eyjarnar. Í minnisblaði frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu sem lekið var að mögulegt væri að endurhugsa afstöðu Bandaríkjanna til deilunnar sem hefnd fyrir afstöðu Bretlands til árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Javier Milei forseti Argentínu er mikill bandamaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Landsliðið söng um eyjarnar Það vakti mikla athygli í Bretlandi þegar myndband úr búningsklefa argentínska landsliðsins eftir sigur þeirra á Egyptum í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins fór í dreifingu. Þar sungu þeir um að verða heimsmeistara „fyrir Malvinas [argentínska nafn eyjanna], fyrir Diego [Maradona] og fyrir Leo [Messi].“ Landsliðið söng um að sigra fyrir Falklandseyjar eftir leik þeirra gegn Egyptum í sextán liða úrslitum.Knattspyrnusamband Argentínu „Á hverjum degi endurnýja ég þetta umboð með þeirri vitund að fáar skyldur geta verið meiri heiður fyrir utanríkisráðherra en að bera rödd þessa réttláta málstaðar út í heiminn og verja hann með sömu festu og milljónir samlanda minna aðhyllast hann. Í því felst einn mesti heiður og skuldbinding sem Argentínumaður getur tekið að sér. Það er mín skuldbinding,“ skrifar Pablo Quirno utanríkisráðherra Argentínu.
Argentína England HM 2026 í fótbolta Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira