Sport

Hættir vegna höfuðmeiðsla og á­hrifa þeirra á and­lega heilsu hans

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Axel Snær Orongan endaði ferilinn í vor með því að hjálpa Skautafélagi Reykjavíkur að vinna sinn áttunda Íslandsmeistaratitil og jafnframt þann þriðja á síðustu fjórum árum.
Axel Snær Orongan endaði ferilinn í vor með því að hjálpa Skautafélagi Reykjavíkur að vinna sinn áttunda Íslandsmeistaratitil og jafnframt þann þriðja á síðustu fjórum árum. @axelorongan

Axel Snær Orongan, íslenskur landsliðsmaður í íshokkí og lykilmaður í liði Íslandsmeistara Skautafélags Reykjavíkur, hefur tekið þá stóru ákvörðun að setja keppnisskautana sína upp á hillu.

Axel Snær snéri aftur inn á svellið í ársbyrjun og á miðju tímabili eftir langa fjarveru vegna meiðsla en hann tilkynnti í kvöld á samfélagsmiðlum sínum að hann hefði nú spilað sinn síðasta leik.

Axel er fæddur í mars árið 2001 og er enn bara 25 ára gamall en verður engu að síður að segja þetta gott í íshokkínu.

„Eftir miklar hugleiðingar hef ég tekið þá erfiðu ákvörðun að leggja skautana á hilluna. Vegna höfuðmeiðsla sem ég hef orðið fyrir og þeim áhrifum sem þau hafa haft á andlega heilsuna mína tel ég að þetta sé rétta ákvörðunin fyrir mig og framtíðina mína,“ skrifaði Axel Snær á samfélagsmiðla sína.

Axel var með fimm mörk og fimm stoðsendingar í fjórum leikjum með Skautafélagi Reykjavíkur á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að vinna sinn áttunda Íslandsmeistaratitil og jafnframt þann þriðja á síðustu fjórum árum.

„Þetta er ekki ákvörðun sem ég endilega vildi taka, en heilsan verður alltaf að vera í fyrsta sæti og þar af leiðandi er þetta erfið en samt rétt ákvörðun fyrir mig,“ skrifaði Axel.

„Ég er búinn að ganga í gegnum alls konar síðastliðið ár varðandi andlega líðan og heilsu og veit að það hefði hjálpað mér mikið ef umræðan um andlega líðan hjá íþróttamönnum væri meiri,“ skrifaði Axel. 

„Mér finnst of lítið talað um þetta og þar að leiðandi vil ég líka taka það fram að það er ekkert að því að líða illa, það er alltaf hægt að vinna í þeim hlutum og hlutirnir verða alltaf betri á endanum. Það skiptir bara mestu máli að þora að segja frá því!,“ skrifaði Axel en það má sjá alla færslu hans hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×