Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Jakob Bjarnar skrifar 14. júlí 2026 11:23 Sandra B. Franks var allt annað en ánægð með gáleysisleg orð Sigmars Vilhjálmssonar um menntun sjúkraliða. vísir/lýður valberg/vilhelm Sigmar Vilhjálmsson, þáttastjórnandi í Bítinu á Bylgjunni, braut odd af oflæti sínu í morgun og bað sjúkraliða afsökunar á gáleysislegum orðum sínum þess efnis að þar færi ófaglærð stétt. „
Já, við báðum þá afsökunar í morgun. Móðir mín var ófaglærður sjúkraliði en nú er búið að breyta þessu í þriggja ára framhaldsnám,“ segir Sigmar auðmjúkur við Vísi. „Þetta var því rangt. Þetta er hálfvitleysa.“ Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, vildi gera alvarlegar athugasemdir við umfjöllun Bítisins sem tók fyrir viðtal við hana á síðum Morgunblaðsins þar sem hún lýsti þungum áhyggjum af stöðu sjúkraliðastéttarinnar og skorti á nýliðun innan þeirra stéttar. Telur Sigmar hafa gert lítið úr menntun sjúkraliða „Það kom mér verulega á óvart hversu mikilli léttúð umfjölluninni var mætt í þættinum. Þar var meðal annars sagt að mamma Simma hefði verið sjúkraliði í 10 til 15 en þá var þetta ófagmenntað fólk, varla fagmenntað, eða þannig, og fólk lærði til verka. Og svo bættist við að sjúkraliðar væru ekki háskólamenntað fólk. Þarna er einfaldlega rangt farið með,“ segir Sandra. Sjúkraliðar eru löggilt heilbrigðisstétt og starfsheitið er lögverndað. Samkvæmt lögum um heilbrigðisstarfsmenn er þeim sem ekki hefur gilt starfsleyfi landlæknis óheimilt að nota löggilt starfsheiti eða starfa sem heilbrigðisstarfsmaður. „Ómenntuð manneskja getur vissulega hafa sinnt mikilvægum umönnunarstörfum á heilbrigðisstofnun, en þá er hún ekki sjúkraliði í faglegum eða lagalegum skilningi þess orðs,“ segir Sandra sem telur umsjónarmenn, einkum Sigmar, hafa gert lítið úr menntun sjúkraliða. Til þess fallið að festa ranghugmyndir í sessi Sigmar, sem hefur verið afleysingarmaður í Bítinu í sumar, virðist þannig hafa einstakt lag á að strjúka fólki öfugt, eins og meðfylgjandi brot sýnir sem Sigmar deildi á Facebook-síðu sinni: Sandra kann vel að meta að athugasemd sinni hafi verið tekið af alvöru; hún vildi ekki gera stórmál úr þessu heldur bregðast við röngum upplýsingum um menntun og starfsheiti sjúkraliða. „Þegar slíkt kemur fram í vinsælum útvarpsþætti getur það auðveldlega fest ranghugmyndir í sessi um stétt sem þegar glímir við miklar áskoranir í nýliðun og sýnileika,“ segir Sandra sem er meira en til í að mæta í Bítið og ræða við þau um starfið og takast á við ranghugmyndir um það. Sigmar segist vera opinn fyrir því.
Fjölmiðlar Heilbrigðismál Landspítalinn Eldri borgarar Bítið Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira