Erlent

Testósterónmagn kannað hjá öllum her­mönnum 30 ára og eldri

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Hegseth hefur verið mjög upptekinn af ímynd hersins frá því að hann tók við embætti.
Hegseth hefur verið mjög upptekinn af ímynd hersins frá því að hann tók við embætti. Getty/Alex Wong

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur greint frá því að hér eftir verði staða hormónabúskapar hermanna 30 ára og eldri könnuð í árlegum heilsufarsprófunum. Ráðherrann segir tilganginn að tryggja „rétt testósterón-magn“ og að menn séu í toppformi.

Að sögn ráðherrans verður hermönnum sem mælast með of lítið testósterón boðin hormónameðferð. Athugunin verður valkvæð hjá þeim sem eru yngri en 30 ára.

„Stríðsmenn okkar eiga inni hjá okkur heimsins bestu heilbrigðisþjónustu og þetta átak er þáttur í því,“ sagði Hegseth í gær. Til að tryggja góða heilsu til lengri tíma þyrfti að huga að því að viðhalda styrk og getu.

Ráðherrann hefur ekki sagt berum orðum hvort aðeins er um að ræða karla eða hvort hormónabúskapur kvenna verði einnig athugaður. Hann breytist verulega með aldrinum og þá dregur meðal annars úr testósterón framleiðslu.

Tammy Duckworth, öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins frá Illinois og fyrrverandi hermaður, hefur hvatt Hegseth til að bjóða báðum kynum upp á hormónapróf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×