„Ég er bara í brjáluðu skapi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júlí 2026 22:17 Rúnar var reiður þrátt fyrir sigur. Vísir/Diego Rúnar Kristinsson var ósáttur við sína menn í liði Fram þrátt fyrir 3-2 sigur á Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fram komst þó upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum.
Fram vann 3-2 sigur þökk sé þremur mörkum á sex mínútna kafla í fyrri hálfleik. Liðið var með öll völd á vellinum eftir mörkin þrjú fram að hléi en tókst ekki að nýta urmul færa. Svo slökuðu Framarar á klónni eftir hlé og refsaðist nærri því fyrir. „Alltof tæpt. Við vorum ekki góðir fyrstu tuttugu þar sem Valsmenn voru með yfirhöndina. Þeir gerðu okkur erfitt fyrir í byrjun en svo skorum við þrjú hröð mörk og komum okkur í frábæra stöðu,“ segir Rúnar eftir leik og bætir við: „Í stöðunni 3-1 eigum við fullt af færum. Við hefðum átt að vera 5-1 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik kemur Valur sterkur inn og minnkar muninn og svo þrýsta þeir okkur til baka,“ „En skyndisóknarmöguleikarnir okkar og möguleikarnir að skora mörk voru ótrúlegir. Fáránleg ákvarðanataka, léleg skot, skot þegar frekar átti að vera sending. Ég er bara í brjáluðu skapi og var orðinn pirraður á dómaranum og lét það fara í taugarnar á mér í restina. Ég er eiginlega bara fúll þó við höfum unnið,“ segir Rúnar. En hvernig skýrir hann það hversu mikið hans menn slökuðu á klónni? „Ég held að menn séu að reyna. En ég held allir hafi verið of æstir í skora í stað þess að gefa betri sendingu á næsta mann og taka betri ákvörðun. Svo skora þeir og það verður panik. Meira að segja þegar við verðum fleiri þá sér maður engar mun og við tökum endalausar rangar ákvarðanir í því þegar við erum að reyna að halda í boltann,“ „Seinni hálfleikurinn var ekki nægilega góður. Alltof mikið af feilsendingum og rangri ákvarðanatöku en það er ágætt að vinna þegar við erum ekki upp á okkar besta,“ segir Rúnar.
Fram Besta deild karla Valur Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Þrótturum mistókst að komast á toppinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Íslenski boltinn Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Íslenski boltinn Ekki rétt að hann hafi „risið upp frá dauðum“ Fótbolti Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Fótbolti Fleiri fréttir Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Sjá meira