Formúla 1

Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Kimi Antonelli hefur unnið sex af tíu keppnum ársins.
Kimi Antonelli hefur unnið sex af tíu keppnum ársins. Andrea Diodato/NurPhoto via Getty Images

Kimi Antonelli komst aftur á sigurbraut í Formúlu 1 kappakstrinum í Belgíu eftir að hafa misst af toppsætinu í síðustu þremur keppnum.

Mercedes bíllinn var Antonelli ekki til neinna vandræða um helgina. Hann vann tímatökuna í gær og fór fremstur af stað í morgun en missti forystuna. 

Charles Leclerc hjá Ferrari gerði sig sigurstranglegan og Antonelli var um tíma þremur sekúndum á eftir honum.

Ítalinn ungi náði hins vegar að berjast til baka gegn Mónakómanninum og endurheimti efsta sætið á 34. hring í framúrtöku sem má sjá hér fyrir neðan.  

Fyrir lokahringinn leiddi Antonelli með 2,3 sekúndum og kom sigrinum örugglega yfir línuna.

George Russell, liðsfélagi Antonelli hjá Mercedes og helsti keppinautur hans um heimsmeistaratitilinn, féll úr leik á fyrsta hring eftir árekstur við Lewis Hamilton.

Hamilton fékk fimm sekúndna refsingu fyrir sinn þátt í árekstrinum við Russell og bíður nú eftir mati dómnefndar hvort frekari refsing verði sett. Hann gæti því dottið niður úr fjórða sætinu en það á eftir að koma í ljós síðar.

Max Verstappen hafnaði í þriðja sæti, þrátt fyrir að hafa byrjað frábærlega og tekið forystuna um stund.

Eftir helgina er Antonelli með 45 stiga forskot í efsta sæti heimslistans, mögulega meira ef Hamilton fær refsistig, og 50 stiga forskot á Russell.

Staðan á heimslistanum eftir belgíska kappaksturinn (háð breytingum): 

  1. Kimi Antonelli, Mercedes - 204 points
  2. Lewis Hamilton, Ferrari - 159 points (-45)
  3. George Russell, Mercedes - 154 points (-50)
  4. Charles Leclerc, Ferrari - 126 points (-78)
  5. Lando Norris, McLaren - 103 points (-101)

Næsti kappakstur fer fram í Búdapest í Ungverjalandi eftir viku, sunnudaginn 26. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×