Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Kristján Már Unnarsson skrifar 20. júlí 2026 09:09 Nýja Þjórsárbrúin kemur skammt ofan við eyjuna Árnes, sem sést ofarlega fyrir miðri mynd. Efst í kvíslinni hægra megin er Búðafoss. Vegagerðin Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá á móts við þorpið Árnes hefur verið boðin út ásamt nýbyggingu Búðafossvegar. Brúarsmíðin og vegarlagningin boða einhverja mestu samgöngubyltingu í uppsveitum Suðurlands um áratugaskeið. Dæmi eru um að leiðir milli einstakra byggða í Árnes- og Rangárþingi styttist um yfir fimmtíu kílómetra.
Verkið tengist gerð Hvammsvirkjunar og er unnið í samstarfi Vegagerðarinnar og Landsvirkjunar. Vegagerðin býður það út og hefur umsjón með því. Landsvirkjun greiðir 40 prósent kostnaðar en Vegagerðin 60 prósent. Samkomulag er um að Landsvirkjun leggi út fyrir öllum kostnaði en Vegagerðin greiði sinn hluta síðar, eða þegar fjárveiting fæst á samgönguáætlun og fjárlögum. Kærumál vegna virkjunarinnar hafa hindrað framkvæmdir árum saman. Eftirlitsþáttur brúarsmíðinnar og vegagerðarinnar var þó boðinn út í vor en með fyrirvara. Þá skýrði verkefnisstjóri Vegagerðarinnar frá því að beðið yrði með framkvæmdaútboð þar til kærumál yrðu útkljáð og kærufrestir útrunnir. Í frétt Stöðvar 2 í nóvember 2024, þegar búist var við því að stutt væri í útboð, var sýnt myndband Vegagerðarinnar af útliti mannvirkjanna og staðsetningu þeirra: Til stóð að bjóða verkið út haustið 2023 en því var þá slegið á frest um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonuðust þá til að brúarsmíðin tefðist ekki of mikið, eins og lesa má um í þessari frétt: Sumarið 2009 vonuðust sunnlenskir ráðamenn raunar eftir útboðinu þá um haustið, eins og rifja má upp í þessari sautján ára gömlu frétt Stöðvar 2: Í útboðsauglýsingu Vegagerðarinnar kemur fram að brúin verði 204 metra löng og staðsett norðaustan við Búðafoss. Vegna fiskgengdar séu skorður settar á vinnu í farvegi Þjórsár sem hafi áhrif á byggingu varnargarða. Búðafossvegur verði 7,4 kílómetra langur en hann tengi Þjórsárdalsveg í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landveg í Rangárþingi ytra. Á gatnamótum Þjórsárdalsvegar og Búðafossvegar verður gert hringtorg. Verkinu fylgja jafnframt tengivegir og heimreiðar á fjórum stöðum, alls um 2,6 kílómetrar. Sett verði upp tvenn reiðgöng, ræsi og búfjárgöng. Ekki kemur fram í útboðsauglýsingunni hvenær verklok séu áætluð. Í fyrri fréttum Vísis hefur þó verið skýrt frá því að verktími sé áætlaður um þrjú ár. Í frétt síðla árs 2024 kom fram að heildarkostnaður við smíði brúarinnar og gerð Búðafossvegar væri áætlaður á bilinu þrír til fjórir milljarðar króna.
Deilur um Hvammsvirkjun Skeiða- og Gnúpverjahreppur Rangárþing ytra Vegagerð Samgöngumál Landsvirkjun Vatnsaflsvirkjanir Ferðaþjónusta Ferðalög Orkumál Umhverfismál Stangveiði Lax Tengdar fréttir Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga. 10. júní 2026 14:48 Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál Vegagerðin hefur boðið út eftirlit og ráðgjöf með smíði nýrrar Þjórsárbrúar og gerð Búðafossvegar. Samningur um eftirlitið sem og fyrirhugað verkútboð eru þó háð því að búið verði að útkljá kærumál, sem árum saman hafa tafið bæði Hvammsvirkjun og Þjórsárbrúna. 19. maí 2026 12:37 „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. 11. júní 2026 10:00 Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna. 10. júní 2026 16:24 Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira
Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga. 10. júní 2026 14:48
Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál Vegagerðin hefur boðið út eftirlit og ráðgjöf með smíði nýrrar Þjórsárbrúar og gerð Búðafossvegar. Samningur um eftirlitið sem og fyrirhugað verkútboð eru þó háð því að búið verði að útkljá kærumál, sem árum saman hafa tafið bæði Hvammsvirkjun og Þjórsárbrúna. 19. maí 2026 12:37
„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. 11. júní 2026 10:00
Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna. 10. júní 2026 16:24