Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2026 15:31 Rodrigo de Paul sést hér niðurbrotinn við hlið Lionel Messi eftir að ljóst var að argentínska landsliðið hafði tapað úrslitaleiknum og möguleikanum á því að verja titilinn. Getty/Carl Recine Rodrigo De Paul, leikmaður argentínska landsliðsins, gagnrýnir þá sem telja að Argentína hafi notið velvildar dómara á heimsmeistaramótinu í fótbolta í ár.
Hluti af opinberri umræðu á samfélagsmiðlum á meðan á HM stóð snerist um að Argentína nyti velvildar dómara af pólitískum eða viðskiptalegum ástæðum. Rodrigo De Paul, fyrrverandi stjarna Atlético Madrid, gagnrýnir harðlega þær skoðanir sem styðja þá hugmynd að Argentína hafi verið í uppáhaldi hjá yfirvöldum fótboltans. „Í dag sé ég hversu margir biðu eftir þessum úrslitum og dreifðu tilefnislausum samsæriskenningum út allt HM til að lina sársauka annarra, því þeir gátu ekki upplifað það sem við Argentínumenn upplifðum,“ skrifaði De Paul í færslu á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Rodrigo De Paul (@rodridepaul) Atvik sem kynti undir vangaveltum um velvild í garð Argentínu var þegar 3-0 mark Egyptalands gegn Argentínu var umdeilanlega dæmt af með hjálp VAR. Brot á Lisandro Martínez, leikmanni Argentínu, alveg við hornfána Egypta var ástæðan fyrir því að markið var dæmt af. Argentína vann leikinn að lokum 3-2. „Ég tel ekki að þetta hafi verið brot eða að VAR hefði átt að grípa inn í til að dæma markið af,“ sagði fyrrverandi dómari í ensku úrvalsdeildinni, Mark Clattenburg, eftir leikinn. „Mesti sársaukinn er vegna þess að við gátum ekki fært heimsbikarinn aftur til landsins okkar, því ef einhverjir áttu skilið að upplifa þá tilfinningu aftur, þá voru það þið,“ skrifaði De Paul „En eftir því sem líður á stundirnar gerum við okkur grein fyrir því að samkenndin sem þið hafið með þessum hóp nær lengra en bikarinn og það er eitthvað sem ég vil halda í til að komast í gegnum þessa stund. Það mun særa mig í langan tíma en í dag er ég stoltari en nokkru sinni fyrr af því að vera Argentínumaður,“ skrifaði De Paul.
HM 2026 í fótbolta Argentína Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjá meira