Fyrrum UFC-meistari vinnur fyrir sér sem sendill Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2026 12:30 Bardagakonan Jessica Andrade glímir við meiðsli og berst ekki á meðan. Hún þarf að eiga í sig og á og leitar allra leiða til þess. Getty/Chris Unger Jessica Andrade er fyrrverandi UFC-meistari í fluguvigt en hún segist hafa unnið sem sendill til að afla sér aukatekna á meðan hún jafnar sig eftir meiðsli.
Þessi 34 ára brasilíska bardagakona hefur ekki keppt síðan hún tapaði fyrir Loopy Godinez í ágúst síðastliðnum en hún meiddist á öxl í bardaganum. Andrade hefur barist þrjátíu sinnum í UFC frá því hún hóf keppni árið 2013 og hefur unnið sautján af bardögum sínum. „Ég vinn sem sendill. Ég sendi mat og þess háttar. Ég tek bara við pöntunum í gegnum smáforrit og sé um sendingarnar,“ sagði Jessica Andrade í brasilíska MMA-hlaðvarpinu Direto de Vegas en breska ríkisútvarpið segir frá. UFC fighter Jessica Andrade delivering food to make money while sidelined with injury: ‘I’m not afraid of hard work’ https://t.co/mbr8QSBzkI— MMA Fighting (@MMAFighting) July 22, 2026 „Ég geri hvað sem þarf. Ég er ekki hrædd við erfiðisvinnu. Ég get gert nánast hvað sem er,“ sagði Andrade. Andrade sagðist líka hafa byrjað á landslagsverkefni heima hjá vini sínum sem felur í sér að fjarlægja grjót, leggja gras og mála girðingar. „Ef ég er góð í þessu bætist það við það sem ég get gert ef mig vantar einhvern tímann peninga. Við þurfum smá aukapening,“ sagði Andrade. Árið 2018 sagðist Andrade hafa selt UFC-fötin sín, bakpoka og hanska vegna þess að hún átti í erfiðleikum með að fá styrktaraðila, en bætti við að hún fengi „mjög vel borgað“ hjá samtökunum. Árið 2023 sagðist hún hafa barist fimm sinnum til að borga fyrir skilnað sinn, en árið eftir sakaði hún fyrrverandi þjálfara sinn, Gilliard Parana, um að hafa haldið eftir peningum frá henni. Parana neitaði öllum ásökunum. Laun UFC-bardagakappa hafa verið gagnrýnd af íþróttamönnum og fjölmiðlum en UFC greiðir um tuttugu prósent af tekjum sínum í laun til bardagakappa á meðan hnefaleikakappar fá um sextíu prósent af tekjum af sínum viðburðum. Þegar White var spurður út í gagnrýnina hefur hann bent á að laun UFC-bardagakappa hafi hækkað frá árinu 2001.
MMA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira