Sport

Dag­skráin í dag: Akureyrarslagur og Stúkan á eftir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórsarar unnu topplið Víkinga í síðasta leik og heimsækja nágranna sína í kvöld.
Þórsarar unnu topplið Víkinga í síðasta leik og heimsækja nágranna sína í kvöld. Vísir/Diego

Akureyrarliðin KA og Þór mætast í Bestu deild karla í fótbolta og Sýn Sport verður á staðnum með útsendingu.

Þórsarar sitja í neðsta sæti deildarinnar en ná nágrönnum sínum að stigum með sigri. Það er því ekki aðeins heiðurinn sem er undir heldur lífsnauðsynlegt stig í harðri fallbaráttu deildarinnar.

Á undan verður sýnt beint frá leik Breiðbliks og ÍBV en útsending frá honum hefst klukkan 17.50 á Sýn Sport Ísland 2.

Útsendingin frá Akureyri hefst klukkan 19.00 á Sýn Sport Ísland en eftir leikinn mun síðan Stúkan gera upp alla sextándu umferðina. Eftir þessa umferð verða öll liðin búin að spila jafnmarga leiki á nýjan leik.

Það verður einnig sýnt beint frá leik Vittsjö og Malmö FF í sænsku kvennadeildinni en íslenska landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir er nýgengin til liðs við Malmö. Útsendingin hefst klukkan 16.50 á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×