Jón Þór: „Ég er algjörlega orðlaus“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 26. júlí 2026 22:10 Jón Þór Hauksson þjálfaði áður Skagamenn en sá sína menn steinliggja á Akranesi í kvöld. Vísir/Vilhelm Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, átti erfitt með að finna orðin til að lýsa frammistöðu sinna manna eftir 5-1 tap gegn ÍA uppi á Skaga í kvöld.
Staðan var 3-0 í hálfleik fyrir heimamönnum þar sem fyrstu tvö mörkin komu á fyrstu tíu mínútunum. Andri Rúnar Bjarnason náði svo að minnka muninn áður en Skagamenn skoruðu síðustu tvö mörk leiksins. „Mér fannst með ólíkindum hvernig við mættum hérna til leiks eða mættum ekki til leiks. Ég vil bara byrja á að óska þeim til hamingju með sigurinn. Þeir voru frábærir hérna í kvöld. Þeir gjörsamlega hlupu yfir okkur, spörkuðu langt og eltu alla bolta og munurinn var sá að við gerðum það ekki. Ef þeir komust ekki aftur fyrir okkur þá tóku þeir seinni boltann og komu hlaupandi á okkur þannig að við bara svöruðum því ekki,“ sagði Jón Þór og hélt áfram. „Við vorum bara að spara okkur. Fyrir það fyrsta hlupum við ekki leikinn, settum ekki líkamann fyrir, í fiffty-fiffty tæklingum þá trítluðu Skagamenn upp úr því alveg sama hvort það voru einn eða tveir Stjörnumenn í því og alltaf trítlaði Skagamaðurinn í burtu með boltann. Þegar svo er er bara ein niðurstaða, þeir bara hlupu í burtu með sigurinn, það er ekkert flóknara en það.“ Er þetta annað stóra tap Stjörnunnar í röð í Bestu deildinni en liðið tapaði 5-0 gegn KR um síðustu helgi. Eftir það sigraði liðið Ilves í undankeppni Sambandsdeildarinnar og er síðari leikurinn á fimmtudaginn í Finnlandi. Aðspurður út í orð hans um að liðið hafi verið að spara sig hafði Jón Þór þetta að segja. „Ég get ekki lesið neitt annað út úr þessu. Mér fannst við vera að hlífa okkur, við fórum ekki á fullu í návígi, mér fannst við ekki setja líkamann fyrir boltann til þess að passa hann og við hlupum ekki. Það er stór munur á þessum leik og KR-leiknum. KR-ingarnir spiluðu sundur við okkur, en Skagamennirnir komu hérna í dag og hlupu með þetta frá okkur af því að við gerðum það ekki. Upplifunin er sú að það er stór munur á þessum tveimur leikjum.“ Stjarnan er nú aðeins tveimur stigum frá fallsæti en Jón Þór segir það ekki vera hans helsta áhyggjuefni. „Taflan er minnsta af mínum áhyggjum. Mínar stærstu áhyggjur eru að fá svör við því af hverju við mætum svona til leiks og hvernig okkur dettur í hug að við fáum einhverja niðurstöðu út úr því þegar við mætum svona til leiks. Bara eitt stórt spurningarmerki með það. Það þarf að byrja á því að fá lausn á því,“ sagði Jón Þór að lokum.
Besta deild karla Stjarnan ÍA Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Sjá meira