Erlent

Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan

Eiður Þór Árnason skrifar
Eyjan Kyushu.
Eyjan Kyushu. Wikimedia Commons/NASA

Öflugur jarðskjálfti skók borgina Kumamoto á japönsku eyjunni Kyushu í morgun og var hann 7,1 að stærð samkvæmt bráðabirgðamælingum. Japanska veðurstofan hefur gefið út flóðbylgjuviðvörun vegna þessa.

Kyushu er þriðja stærsta eyjan í Japan og búa þar yfir tólf milljónir manna.  Kjarnorkueftirlit Japans sagði að engin frávik hefðu fundist í þremur nálægum kjarnorkuverum vegna skjálftans. Skjálftinn fannst seint síðdegis að staðartíma.

Almannavarnayfirvöld segja engar tilkynningar hafa borist um skemmdir á mikilvægum opinberum mannvirkjum og innviðum á svæðinu en yfirvöld væru enn að meta umfang tjónsins af völdum skjálftans.

Íbúar voru varaðir við áframhaldandi skjálftavirkni á svæðinu og þeir hvattir til að vera sérstaklega á varðbergi næstu tvo til þrjá daga vegna möguleika á öðrum stórum skjálfta.

Shinji Kiyomoto, hjá Japönsku veðurstofunni, sagði á blaðamannafundi að engin flóðbylgja hefði enn sést á landi vegna skjálftans og að stofnunin hygðist aflétta flóðbylgjuviðvöruninni tiltölulega fljótlega.

Fólk eigi að forðast strandlínuna

Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, hefur hvatt íbúa til að forðast strandlínuna þar sem búið er að spá flóðbylgju sem gæti náð eins metra hæð.

Hún sagði að ríkisstjórnin hefði sett á fót verkefnahóp til að safna upplýsingum, meta hugsanlegar skemmdir og undirbúa björgunaraðgerðir ef þörf krefur.

„Við setjum líf fólks í forgang,“ sagði Takaichi og hvatti íbúa á þeim svæðum þar sem skjálftinn fannst vel til að sýna aðgát vegna hugsanlegra sterkra eftirskjálfta.

Veðurstofan sagði að flóðbylgjuviðvörunin gilti fyrir Ariake-flóa á vesturströnd Kumamoto, um 900 kílómetra suðvestur af Tókýó.

Kumamoto varð fyrir mannskæðum jarðskjálfta árið 2016 þar sem yfir 50 fórust, 1.800 slösuðust og tugþúsundir heimila skemmdust eða eyðilögðust.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×