Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. júlí 2026 07:46 BBC segir alls um 120 konur hafa sakað leikarann um óviðurkvæðilega hegðun. epa/Allison Dinner Fjórar konur stíga fram í nýrri heimildarmynd BBC um Jared Leto og saka leikarann um að hafa framið refsiverð brot gegn sér þegar þær voru táningar. Fleiri greina frá því að hafa fengið undarleg og oft kynferðisleg símtöl frá Leto þegar þær voru yngri.
Leto, sem vakti fyrst athygli fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum My So-Called Life og vann síðar til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Dallas Buyers Club, hefur ítrekað verið ásakaður um óeðlilegan áhuga á stúlkum undir lögaldri. Ásakanirnar komust síðast í hámæli í fyrra, eftir að plötusnúðurinn Allie Teilz greindi frá því að leikarinn hefði brotið gegn sér þegar hún var sautján ára. Rætt var við tíu konur við gerð heimildarmyndarinnar Jared Leto: Hollywood's Dark Secret. Allar eiga það sameiginlegt að hafa komist í kynni við Leto á árunum 2002 til 2016. Þá var einnig rætt við einstaklinga sem störfuðu fyrir hljómsveit Leto, Thirty Seconds to Mars, sem lýsa því hvernig þeir voru fengnir til að „útvega“ ungar konur til að koma baksviðs eftir tónleika. Leto er meðal annars ásakaður um að hafa nauðgað sautján ára stúlku, ráðist á aðra sautján ára inni á baðherbergi á móteli og hótað nítján ára konu á hótelherbergi. Þá segir ein konan að Leto hafi áreitt hana með kynferðislegum símtölum þegar hún var sextán ára. Samkvæmt BBC hafa margar kvennanna getað stutt mál sitt með gögnum og vitnisburðum fjölskyldumeðlima og vina. Leto hefur ekki svarað fyrirspurnum BBC.
Hollywood Kynferðisofbeldi Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira