Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. júlí 2026 12:20 „Það felast stórkostleg sóknarfæri í því fyrir neytendur og atvinnulíf á Íslandi að tekin verði stærri skref til samþættingar íslensks hagkerfis við innri markað Evrópusambandsins,“ segir ráðherra. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir það óviðunandi hlutskipti fyrir stolta og fullvalda þjóð að vera umsagnaraðili frekar en beinn þáttakandi í mótun regluverks sem EES-samstarfið grundvallast á. Að setjast við borðið sé til þess gert að styrkja fullveldið, ekki veikja það.
Þetta kemur fram í nýrri grein sem ráðherra hefur birt á Substack-síðu sinni. Jóhann Páll segist löngum hafa verið efins um að Ísland ætti að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið, ekki síst vegna evrukrísunnar og þess hvernig ákvörðunarferlar virtust greiða fyrir markaðsvæðingu. Hann hefði verið þeirrar skoðunar að þrátt fyrir að lítill sjálfstæður gjaldmiðill hefði ákveðinn kostnað í för með sér, hefði fljótandi gengi einnig kosti. Ísland ætti að einbeita sér að því að efla EES-samstarfið og þróa eigin stjórntæki í peningamálum. „Afstaða mín tók að breytast eftir að ég lærði evrópska stjórnmálahagfræði við London School of Economics. Þá fór ég smám saman að efast um ýmsar forsendur sem ég hafði áður gefið mér um valkosti Íslands í Evrópumálum. Afstaðan þróaðist svo enn frekar eftir að ég steig inn í íslensk stjórnmál og kynntist Evrópusamstarfinu frá allt öðru sjónarhorni: fyrst sem alþingismaður og síðan sem ráðherra og yfirmaður þess ráðuneytis sem ber ábyrgð á innleiðingu margra af umfangsmestu og flóknustu Evrópugerðunum á Íslandi,“ segir Jóhann Páll. Hann segist nú sannfærður um að Ísland eigi að klára aðildarviðræðurnar. Þar vegi þrennt þyngst: Sóknarfæri fyrir neytendur og atvinnulíf, bein aðild að ákvarðanatöku og breytt heimsmynd. „Heimurinn hefur breyst, staða smáríkja er allt önnur í dag en fyrir örfáum árum og bandalög skipta meira máli en nokkru sinni fyrr. Það væri ábyrgðarleysi af íslenskum stjórnvöldum að loka augunum fyrir þessum veruleika. Þess vegna er rétti tíminn fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið ekki eftir fimm ár eða tíu ár heldur núna.“ Atkvæðagreiðslan snúist um að opna dyrum eða loka þeim. Ráðherra segir „nei“ fullkomlega lögmæta afstöðu. Ef niðurstaðan verði „já“ komi það í hlut stjórnvalda að ganga „hnarreist til viðræðna, verja ýtrustu hagsmuni þjóðarinnar og ná góðum samningi sem tekur mið af sérstöðu okkar“.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira