Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Birgir Olgeirsson skrifar 29. júlí 2026 15:04 Á myndinni má sjá ratstjárstöðina á Bolafjalli sem Landhelgisgæslan rekur. Fjallið er tæplega 700 metra hátt. Bíllinn fór fram af þeim megin sem vegurinn fer niður fjallið en ekki á þessari hlið sem snýr að sjónum og er þverhnýpt. Vísir/Vilhelm Kona nokkur slapp með minniháttar áverka eftir að bifreið hennar valt tvö til þrjú hundruð metra niður Bolafjall við Bolungarvík. Atvikið átti sér stað nú á þriðja tímanum að sögn Hlyns Snorrasonar, yfirlögregluþjóns á Ísafirði. Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna tilkynningarinnar. Horft yfir Bolungarvík af Bolafjalli. Vegurinn upp fjallið er um níu kílómetra langur, brattur og að mestu malarvegur. Hann liggur upp í 638 metra hæð og er aðeins opinn almennri umferð yfir sumarið.Vilhelm Tveir lögreglubílar, tveir sjúkrabílar og björgunarsveit fóru á vettvang en þegar þangað var komið reyndist konan með minniháttar áverka og því fór betur en áhorfðist. Hér má sjá flak bílsins úr nokkurri fjarlægð. Það sést móta fyrir veginum fyrir ofan miðja ymnd og svo má sjá bílflakið fyrir neðan miðja mynd. Konan var ein í bílnum og var flutt á sjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar. Bíllinn er sagður gjörónýtur en tildrög slyssins liggja ekki fyrir að svo stöddu. Hlynur segist vilja trúa því að bílbelti hafi orðið til þess að líkamleg meiðsli hafi verið í lágmarki. Veistu meira um málið? Þekkirðu til þess sem var í bílnum? Áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot hérna. Bolafjall rís 638 metra yfir Bolungarvík og vegurinn þangað upp er brattur og að mestu malarvegur. Hann var upphaflega lagður vegna ratsjárstöðvarinnar á fjallinu en er opinn almenningi yfir sumarið. Umferð um veginn hefur aukist mikið eftir að útsýnispallur var opnaður á fjallinu árið 2022. Slysið varð þannig að bíllinn fór út af veginum sem liggur af fjallinu og til Bolungarvíkur en ekki að sjónum þar sem er algjörlega þverhnýpt. Fréttin hefur verið uppfærð. Samgönguslys Bolungarvík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira
Atvikið átti sér stað nú á þriðja tímanum að sögn Hlyns Snorrasonar, yfirlögregluþjóns á Ísafirði. Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna tilkynningarinnar. Horft yfir Bolungarvík af Bolafjalli. Vegurinn upp fjallið er um níu kílómetra langur, brattur og að mestu malarvegur. Hann liggur upp í 638 metra hæð og er aðeins opinn almennri umferð yfir sumarið.Vilhelm Tveir lögreglubílar, tveir sjúkrabílar og björgunarsveit fóru á vettvang en þegar þangað var komið reyndist konan með minniháttar áverka og því fór betur en áhorfðist. Hér má sjá flak bílsins úr nokkurri fjarlægð. Það sést móta fyrir veginum fyrir ofan miðja ymnd og svo má sjá bílflakið fyrir neðan miðja mynd. Konan var ein í bílnum og var flutt á sjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar. Bíllinn er sagður gjörónýtur en tildrög slyssins liggja ekki fyrir að svo stöddu. Hlynur segist vilja trúa því að bílbelti hafi orðið til þess að líkamleg meiðsli hafi verið í lágmarki. Veistu meira um málið? Þekkirðu til þess sem var í bílnum? Áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot hérna. Bolafjall rís 638 metra yfir Bolungarvík og vegurinn þangað upp er brattur og að mestu malarvegur. Hann var upphaflega lagður vegna ratsjárstöðvarinnar á fjallinu en er opinn almenningi yfir sumarið. Umferð um veginn hefur aukist mikið eftir að útsýnispallur var opnaður á fjallinu árið 2022. Slysið varð þannig að bíllinn fór út af veginum sem liggur af fjallinu og til Bolungarvíkur en ekki að sjónum þar sem er algjörlega þverhnýpt. Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Þekkirðu til þess sem var í bílnum? Áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot hérna.
Samgönguslys Bolungarvík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira