Fótbraut andstæðing og verður í banni þar til beinið grær Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. júlí 2026 16:02 Victor Gabriel fær ekki að snúa aftur á völlinn fyrr en Gabriel Pec snýr aftur. Úrskurðað var um heldur óvenjulegt leikbann í brasilíska boltanum. Victor Gabriel verður í banni í jafn langan tíma og það tekur Gabriel Pec að jafna sig af meiðslum sem hann hlaut af völdum varnarmannsins. Þó ekki lengur en sex mánuði.
Miðvörðurinn Gabriel hlaut rautt spjald fyrir ljótt brot sem leiddi til fótbrots Pec í leik Internacional og Cruzeiro í síðustu viku. Atvikið má sjá hér fyrir neðan. 🟥 Victor Gabriel recebe cartão vermelho direto por entrada muito forte em Gabriel Pec.#futebol #internacional #cruzeiro #brasileirão #ge pic.twitter.com/wGkk5nS58J— ge (@geglobo) July 23, 2026 Framherjinn Pec var þar að þreyta frumraun sína fyrir Cruzeiro, eftir skipti frá LA Galaxy í Bandaríkjunum, en verður frá næstu mánuði. Vegna alvarleika meiðslanna tók íþróttadómstóll Brasilíu fram fyrir hendur knattspyrnusambandsins og sagði að hefðbundin refsing hæfði ekki Gabriel. Hann mun sæta leikbanni þangað til Pec snýr aftur til æfinga. Bannið mun þó að hámarki gilda í 180 daga. Þegar Gabriel mætti í dómssal sagði hann um algjört óhapp að ræða. „Þetta var mjög óheppilegt atvik. Ég bað hann fyrirgefningar, því það var enginn illur ásetningur í þessu, og bað til guðs að hann yrði í lagi,“ sagði Victor Gabriel.
Brasilía Fótbolti Mest lesið Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ Handbolti Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Enski boltinn „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Íslenski boltinn United aldrei í vandræðum Fótbolti Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Fótbolti Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Íslenski boltinn Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Fótbolti Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Golf Fleiri fréttir Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Sjá meira