Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 30. júlí 2026 12:34 Sólin skein við Seljalandsfoss í morgun þegar fréttamaður Sýnar ræddi við Magnús. Vísir/Lýður Valberg Þrír af sex erlendum ríkisborgurum sem handteknir voru á Suðurlandi í gær grunaðir um vasaþjófnað voru gripnir glóðvolgir af óeinkennisklæddum lögreglumönnum við Seljarlandsfoss. Aðalvarðstjóri segir tugi tilkynninga um vasaþjófnað berast í hverri viku af helstu ferðamannastöðum landsins. „
Við erum búin að fá tilkynningar nánast á hverjum degi á þessum ferðamannastöðum. Við vorum hérna í gær að fylgjast með og sáum þessa aðila að störfum, við verknaðinn. Þeir voru svo handteknir með veski frá öðrum aðilum á staðnum. Þannig að í framhaldi voru þeir handteknir ásamt aðila sem var með þeim og fluttir á Selfoss þar sem teknar voru af þeim skýrslur,“ segir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. „Við erum í samstarfi við alþjóðadeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun til að skoða framhaldið þar sem sterkur grunur er um að þessir aðilar séu hér í þeim tilgangi einum að fremja svona afbrot.“ Þeim handteknu brá ekki þegar lögreglan handtók þá. „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin, það er alveg ljóst.“ Fari yfirleitt í poka og töskur Magnús segir að tilkynningarnar um vasaþjófnað skipti tugum og komi sér í lagi frá allra vinsælustu stöðunum þar sem ferðamenn hópa sig saman. Helst sé verið að taka peninga og greiðslukort. „Það eru yfirleitt tveir sem við höfum séð vinna saman að þessu og annar er aðeins fyrir aftan að skyggja á á meðan hinn opnar pokann,“ segir hann en í flestum tilfellum er farið í poka eða veski sem ekki er verið að fylgjast með. Það sé leitt að ferðamenn sem komi til Íslands, sem er þekkt fyrir að vera öruggt land, lendi í slíku. „Þeir hljóta að hafa einhvern ábata af þessu því annars væru þeir ekki að stunda þetta,“ segir Magnús. Haga sér eins og í París Fjögurra manna teymi hjá lögreglunni á Suðurlandi hefur unnið í sumar að því að standa í hári vasaþjófa. Árangursríkasta leiðin sé að vera vitni að því og þess vegna séu óeinkennisklæddir lögreglumenn á handahófskenndum ferðamannastöðum að fylgjast með. Magnús biðlar til leiðsögumanna og annarra sem starfa innan ferðaþjónustunnar að benda ferðamönnum á að fara varlega. „Vera ekki með verðmæti í pokum en líka að höfða til fólks að fylgjast hvort með öðru,“ segir hann. „Við verðum að hugsa eins og við séum í París á meðan þetta er svona.“
Ferðalög Lögreglumál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira