Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Jón Þór Stefánsson skrifar 31. júlí 2026 14:39 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Einar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir aðgerðir Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra í gærkvöldi sem beindust að Bandero, sem hrelldi hvalveiðiskipið Hval 9 í gærkvöldi, ekki snúast um afstöðu fólks til hvalveiða, heldur um öryggi þeirra sem sækja sjóinn við Íslandsstrendur. „
Þessar aðgerðir snúast ekki um hvalveiðar, heldur um það hvort menn geti komist upp með það að ógna öryggi manna í lögreglri starfsemi, því það er hún á Íslandi,“ sagði Þorbjörg í viðtali við Odd Ævar Gunnarsson, fréttamann Sýnar. „Þetta gekk mjög vel. Það hefur komið fram að það var ástæða til að ætla að öryggi sjófarenda, manna að veiðum, væri stefnt í hættu. Íslensk stjórnvöld hafa verið mjög skýr með það að þetta er ekki mál sem snýst um afstöðu til hvalveiða, heldur öryggi þeirra manna sem þarna voru að veiðum. Öryggi þeirra var ógnað, og það blasti auðvitað við að það yrði aldrei liðið. Ég hef tjáð mig um það áður. Það lá algjörlega í kortunum að við myndum alltaf bregðast við ef hætta væri á ferðum.“ Ofan á þetta allt saman sé ljóst að Bandero hafi farið inn í íslenska landhelgi og ekki hlýtt fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. „Það er búið að reyna ýmis önnur skref áður en farið er í þessa aðgerð, sem er auðvitað dálítið dramatísk. En þetta gekk allt saman mjög vel og þetta er í mínum huga hárrétt skref að taka.“ Full aðdáunar Að sögn Þorbjargar stóðu Landhelgisgæslan og fulltrúar Ríkislögreglustjóra sig með glæsibrag í aðgerðum sínum. Hún, sem og dómsmálaráðuneytuð, var í sambandi við gæsluna og fylgdist með aðgerðum þeirra í gærkvöldi og fram á nótt. Þó tekur hún fram að ákvarðanir og mat á stöðunni hafi verið í þeirra höndum. „Við erum full aðdáunar með að það hafi tekist að leysa svona vel úr flókinni stöðu.“ Aðspurð um hvað henni finnist að gera eigi við áhöfn Bandero, hvort hún verði send úr landi eða saksótt, segir Þorbjörg að slíkt sé í höndum lögreglu, sem hún treysti til að vinna farsællega í málinu. Áhrif á orðspor Íslands? Óttast þú að þessi aðgerð muni hafa skaðleg áhrif á orðspor Íslands, þar sem andstaðan við hvalveiðar er mjög mikil á alþjóðavísu? „Það er staðreynd að andstaðan er mjög mikil, og við vitum það líka að það gerir hún líka á Íslandi, á Alþingi, og í ríkisstjórn Íslands. Ég hef mína skoðun á hvalveiðum. En verkefnið var það sem það var, og ég neita að trúa því að fólk hafi skoðun á því að íslensk stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að verja íslenska landhelgi, og verja öryggi manna sem eru hér á sjó úti,“ segir Þorbjörg. „Svona atvik draga sennilega athyglina ekki frá hvalveiðum. En eins og ég segi, hvað mig varðar og þetta sem var að gerast í gær, snerist ekki um það. Við vorum að tryggja öryggi sjófarenda.“
Hvalir Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Landhelgisgæslan Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira