Handbolti

Með fullt hús stiga á leið í úr­slita­keppni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ísland fer með fimm sigra að baki í átta liða úrslit.
Ísland fer með fimm sigra að baki í átta liða úrslit. ehf euro

Íslenska handboltalandsliðið skipað leikmönnum átján ára og yngri hélt sigurgöngu sinni á Evrópumótinu áfram með öruggum 41-29 sigri gegn Portúgal í lokaleik milliriðilsins.

Ísland endar í efsta sæti milliriðilsins og fer með fullt hús stiga, fimm sigra að baki, í átta liða úrslit en óvíst er enn hverjum liðið mætir þar.

Freyr Aronsson var markahæstur hjá Íslandi í dag með 9 mörk úr 11 skotum. Sigurður Atli Ragnarsson skoraði 5 mörk. Alex Unnar Hallgrímsson, Anton Frans Sigurðsson og Gunnar Róbertsson gerðu allir fjögur mörk.

Sigurhringurehf euro

Ekkert lið hefur reynst drengjunum okkar mikil fyrirstaða hingað til á EM en í átta liða úrslitum verða Slóvenar, Frakkar, Þjóðverjar, Danir og Spánverjar væntanlega í pottinum.

Spennandi verður að sjá hvernig fer hjá þessu bráðefnilega íslenska liði.


Tengdar fréttir

Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli

Gunnar Róbertsson, einn af máttarstólpum hins frábæra undir átján ára landsliðs Íslands í handbolta, hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir frábær tilþrif í leik liðsins gegn Unverjalandi á EM undir átján ára landsliða á dögunum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×